Viðskipti erlent

Hafa tapað 9 milljörðum á Debenhamshlutum

Reikna má með að HSBC bankinn hafi tapað um 9 milljörðum kr. á því að bíða ekki tæpan mánuð með að setja rúmlega 13% fyrrum hlut Baugs í Debenhams í sölu. Bankinn setti hlutinn í sölu síðustu mánaðarmót með verðmiðann 40-45 pens.

Í dag er hluturinn í Debenhams kominn í 80 pens á markaðinum í London eftir að hann hækkaði um rúm 18% á sumardaginn fyrsta. Hækkun kom í framhaldi af hálfsársuppgjöri Debenhams, til loka febrúar, sem sýndi að hagnaður félagsins fyrir skatta hafði hækkað um rúm 11% og sala verslunarkeðjunnar hafði aukist um 0,3% á sama tímabili.

Þá kom einnig fram í uppgjörinu að 100 milljónir punda af skuldum Debenhams eru á gjalddaga í maí og að félagið muni ná að greiða þá upphæð úr varasjóðum sínum og greiðsluflæði úr verslunum félagsins.

Þegar HSBC bankinn setti hlut Baugs í sölu í lok mars á 40-45 pens var markaðsvirði Debenhams 350-390 milljónir punda og hlutur Baugs því um 45-50 milljón punda virði

Síðan hefur markaðsvirðið nær tvöfaldast eins og að framan greinir og er nú um 700 miljónir punda og rúm 13% því rúmlega 90 miljón punda virði. Því hefði sala HSBC gefið af sér um níu milljörðum kr. meira nú en hún gerði fyrir tæpum mánuði síðan.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×