

Það er enn gott að vera Íslendingur
Það hefur verið gæfa Íslendinga, allt frá upphafi byggðar, að þrátt fyrir marga kalda vetur og vot sumur hefur uppgjöf ekki verið valkostur. Sá baráttuandi sem landið og aðstæður þess hafa blásið íbúunum í brjóst hefur alltaf haft sigur. Þennan eiginleika verður að virkja við þær erfiðu aðstæður sem uppi eru. Gefa verður fólki trú á, að það sem verið er að gera muni skila sér í bættum hag til skemmri og lengri tíma litið. Það hefur ekki tekist sem skyldi. Tökum tvö dæmi; sáralítið hefur verið komið til móts við fólk sem lenti í gífurlegum hækkunum lána vegna aðstæðna sem það ber ekki ábyrgð á, á sama tíma og fjármagnseigendur héldu öllu sínu. Það var gott að vernda sparifjáreigendur, en ósanngjarnt að fórna þeim skuldsettu. Í öðru lagi má nefna að sú tilfinningin bærist með mörgum að stjórnvöld hafi í raun ekki lagt sig öll fram við að halda sjónarmiðum Íslendinga á lofti í deilunni um ríkisábyrgðina á Icesave-reikningunum.
Bretar og Hollendingar, með fulltingi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sóttu að Íslendingum með niðurlægjandi hætti. Nota hefði átt andstöðuna við þetta mál hér innanlands, til að sameina þjóðina. Vekja þá von í brjósti að verið væri að berjast fyrir hennar hag. Það var slælega gert. Stjórnvöld hafa barist fyrir því að fá óréttlætið samþykkt á Alþingi og lögum sem Bretar og Hollendingar í raun sömdu, er þvingað í gegnum þingið. Þetta misbýður réttlætiskennd fólks og einnig hvernig að öllu þessu vonda máli var staðið.
Það er gott að vera Íslendingur og oftast gaman. Landið mótar lífsviðhorf okkar og af landinu hefur þjóðin lifað. Svo mun verða áfram og tækifærin hafa kannski aldrei verið eins mörg og nú um stundir. Gæði okkar eru eftirsóknarverð; mannauðurinn, fiskurinn, orkan, hugvitið, kalda vatnið, heita vatnið, hreina loftið, það er sama hvar okkur ber niður. Í raun eru kostir landsins ótrúlega margir þrátt fyrir allt. Verkefni stjórnmálamanna er að sjá til þess að framtaksamir einstaklingar fái notið sín til heilla fyrir þjóðina. Stjórnmálamenn eiga ekki að ákveða hvað fólk tekur sér fyrir hendur, heldur setja almennar reglur um hvernig hlutirnir eru gerðir, þannig að allir sitji við sama borð. Það er nóg til af fólki á Íslandi sem vill láta til sín taka, það þarf bara að skapa umgjörðina svo þetta fólk komist af stað. Það verður ekki gert með stórfelldum skattahækkunum eða innbyrðis deilum í ríkisstjórn um, hvað má og hvað má ekki. Þjóðin þarf að finna það og sjá að verið sé að berjast fyrir hagsmunum hennar. Ég vil leyfa mér að halda því fram að í þeim efnum hafi ríkisstjórnin brugðist. Ekki af því að hana skorti viljann, heldur af því að hún fór ranga leið. Stjórnin telur að sín leið muni skila sér eftir langa mæðu, og við skulum vona að svo verði, en hefðbundin ráð vinstri manna munu ekki nú frekar en endranær færa okkur þá hagsæld sem að er stefnt. Sagan hefur kennt okkur að öfgarnar til hægri og vinstri eru varasamar. Það á sérstaklega við um Íslendinga. Það er hreinlega andstætt eðli þeirra að láta yfirvöld gína yfir öllu, stóru smáu, og skammta sér úr hnefa. Íslendingar hafa ríka sjálfsbjargarviðleitni, þurfa atvinnu og athafnafrelsi, en ekki gamaldags og hættulega forræðishyggju.
Verkefni nýs árs verður að búa svo um hnútana að hér eflist atvinnulíf, því það verður að draga úr atvinnuleysi. Atvinnuleysið er undirrót svo margra annarra vandamála, að á því verður að taka af meiri hörku en gert hefur verið. Lífsbaráttan öðlast nýjan tilgang með vinnu, fólk getur staðið betur í skilum og vonin um að til einhvers sé barist kviknar á ný. Ég hef engar áhyggjur af okkur ef við nýtum sóknarfærin. Það er gott að vera Íslendingur í þeirri baráttu sem fram undan er, og ég hlakka til að leggja mitt af mörkum, eins og ég hef reynt að gera allt þetta ár. Höfum hugfast að það er í lagi að bogna um skeið, en brotna megum við aldrei.
Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.
Skoðun

Ríkisstjórnin stóð af sér áhlaup sérhagsmuna
Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar

Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið
Gína Júlía Waltersdóttir skrifar

Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng
Katrín Sigurðardóttir skrifar

Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið!
Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi skrifar

Linsa Lífsins
Matthildur Björnsdóttir skrifar

„Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu?
Viðar Halldórsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Netöryggi til framtíðar
Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar

Aftur á byrjunarreit
Hörður Arnarson skrifar

Norðurlandamet í fúski!
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám
Matthías Arngrímsson skrifar

Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja
Helen Ólafsdóttir skrifar

Ursula von der Leyen styður þjóðarmorð!
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Hvert er markmið fulltrúalýðræðis?
Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason skrifar

Ég vona að þú gleymir mér ekki
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu?
Grétar Birgisson skrifar

Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það?
Davíð Bergmann skrifar

Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans
Vésteinn Ólason skrifar

Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska?
Júlíus Valsson skrifar

Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna
Jón Þór Ólafsson skrifar

Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag
Davíð Aron Routley skrifar

Dæmt um efni, Hörður
Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Flugnám - Annar hluti: Afskiptaleysi stjórnvalda
Matthías Arngrímsson skrifar

Sóvésk sápuópera
Franklín Ernir Kristjánsson skrifar

Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum?
Anton Guðmundsson skrifar

Dæmir sig sjálft
Jón Pétur Zimsen skrifar

Mega blaðamenn ljúga?
Páll Steingrímsson skrifar

Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Hvað hefur áunnist á 140 dögum?
Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar