Viðskipti erlent

Japanskar húsmæður veðja á veikingu jensins

Sjálfstæðir fjárfestar í Japan þ.e. húsmæður, ellilífeyrisþegar og viðskiptamenn, veðja nú á það í miklum mæli að jenið muni veikjast þegar meiri stöðugleiki kemst á efnahag landsins.

Þetta er gert í svokölluðum álagsviðskiptum (carry trade) en slík viðskipti lögðust nær af í Japan á síðasta ári. Bloomberg-fréttaveitan segir að álagsviðskiptin séu nú þau mestu á undanförnum sex mánuðum þar sem fyrrgreindir fjárfestar taka stöðu gegn jeninu í gjaldmiðlum á borð við evruna og ástralska dollarann.

Fyrrgreindir fjárfestar ganga undir nafninu „húsmæður" í Japan því hefð er fyrir því þar í landi að húsmóðirin annist fjármál fjölskyldunnar. Samkvæmt Japansbanka á þessi hópur samtals tæplega 15 trilljónir dollara í uppsöfnuðum sparnaði. Hópurinn er að auka við sparnað sinn eftir að Japansbanki setti stýrivexti sínar niður í 0,1%. Með því að selja jen gegn evrunni getur hann aukið sparnaðinn um 3,4% fyrir áramótin.

Yoshisada Ishide sem annast 1,8 milljarða dollara sjóð hjá Daiwa í Tókýó segir að húsmæðurnar trúi því að fjármálakreppunni sé lokið og uppsveifla að fara í gang að nýju.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×