Sigið af þaki Turnsins í fyrstu íslensku hasarmyndinni Skólalíf skrifar 21. september 2009 16:57 Sérsveitarmennirnir hlaupa inn í Turninn.
Skotbardagar, blóðsúthellingar, þyrluflug, sprengingar og sig niður af þaki Turnsins í Kópavogi er meðal þess sem fyrir augu ber í nýjasta þætti 12:00, en það er skemmtiþáttur Verzlinga sem nemendur við skólann eiga veg og vanda að. Til að kynna sig til leiks útbjó nefndin sem stendur að baki þættinum eins konar stuttmynd, sem formaður nefndarinnar tekur undir að sé eiginlega fyrsta alvöru íslenska hasarmyndin. Þar bregða nefndarmenn sér í hlutverk sérsveitar sem þarf að berjast við hryðjuverkamenn sem hyggjast sprengja upp Turninn. Nefndarmenn áttu í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Localice um að gera stuttmyndina, en Davíð Örn Símonarson, formaður nefndarinnar, segir þá hafa kynnst aðstandendum fyrirtækisins er þeir dvöldust í Danmörku í sumar.Ekki fyrir lofthrædda - sigið niður Turninn.„Þegar fólk kemur saman á svona erfiðum tímum og vill gera eitthvað skemmtilegt, þá þarf það ekki að kosta mikið," segir Davíð Örn, sem segir myndina hafa kostað um 160 þúsund krónur með öllu. Hann bætir við að Localice hafi boðið fram hjálp sína fyrir litla sem enga greiðslu, og litið svo á að þetta væri gott tækifæri til að koma sér á framfæri. Meðal annarra sem lögðu strákunum lið er sjónvarpskonan Inga Lind Karlsdóttir, sem leikur fréttakonu í myndinni. „Við erum búnir að fá ótrúlega góðar viðtökur. Fólk er að segja við okkur að þetta slái við öllum íslenskum þáttum og að við ættum bara að tala við sjónvarpsstöðvarnar og fá að gera eitthvað sjálfir. Þetta er allavega það umfangsmikið og kemur vel út - miðað við að þannig séð eru þetta bara menntaskólastrákar að leika sér," segir Davíð Örn. Myndbandið hefur vakið nokkra athygli á Facebook, en þeir sem hafa aðgang að síðunni geta horft á myndina hér.
Menntaskólar Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Sahara Ray látin Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira