Viðskipti erlent

Fékk 270 milljónir í starfslok hjá Glitni/BN Bank í Noregi

Morten Björnsson sem lét af störfum hjá BN Bank, áður Glitni, í Noregi eftir áramótin fékk starfslokasamning upp á 14 milljónir norskra kr. eða um 270 milljónir kr.

Þetta hefur vakið athygli í Noregi í ljósi þess að bankinn skilaði tapi upp á 579 milljónir norskra kr. eða rúmlega 11 milljarða kr. á síðasta ári. Og ef ekki hefði komið til neyðaraðstoð frá norskum stjórnvöldum hefðu bankinn orðið gjaldþrota í fyrra.

Morten Björnsson hóf störf hjá bankanum fyrir tveimur árum síðan er bankinn hét ennþá Glitnir í Noregi. Samkvæmt starfslokasamningi hans nú fær hann 5,6 milljónir nkr. í eftirlaun, 2,9 milljónir nkr. í árangurstengdar greiðslur og afgangurinn af upphæðinni eru bónusgreiðslur.

Stjórn bankans er síður en svo hrifinn af þessum upphæðum. Þannig segir Kjell Fordal varaformaður stjórnarinn í samtali við Dagens Næringsliv að þessar greiðslur séu út úr öllu korti. „Þetta er ekki það sem við óskum okkur í stjórninni," segir Fordal.

Nokkrir sparisjóðir (með Sparibank 1 í broddi fylkingar) yfirtóku rekstur BN Bankans undir lok síðasta árs. Fordal leggur áherslu á að sparisjóðirnir hefðu aldrei staðið að svona starfslokasamningi en þeir fengu samninginn í arf við yfirtökuna.

Sjálfur segir Morten Björnsson í yfirlýsingu að það sé hans mat að eigendur bankans hafi verið ánægðir með störf hans. Hinsvegar verði aðrir að leggja mat á hvort greiðslurnar séu eðlilegar eða ekki.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×