Ljónið át ekki páfa Óli Tynes skrifar 29. janúar 2009 11:18 Leimmér að étann, leimmér að étann. MYND/AP
Rómverjar til forna höfðu þann leiða sið að fleygja kristnum mönnum fyrir ljón í hringleikahúsinu mikla. Og skemmtu sér óhóflega þegar ljónin tóku til matar síns. Sagnfræðingurinn Tacitus segir frá því að það hafi ekki verið óalgengt fyrir keisara að æsa lýðinn upp gegn kristnum mönnum þegar eitthvað bjátaði á í Róm. Semsagt að finna óvin til þess að draga athyglina frá hinum raunverulega vanda. Líklega hefur Gordon Brown lesið Tacitus. Árið 64 þegar Róm brann hafði Neró ekki fyrr lagt frá sér fiðluna en hann kenndi kristnum mönnum um eldsvoðann. Í kjölfarið kættust ljónin. Nú eru sem betur fer breyttir tímar. Þegar ítalskur sirkus skemmti Benedikt páfa æðsta manni kaþólskrar kristni í Vatikaninu á miðvikudag, fór vel á með hans heilagleika og ljónsunga sem var með sirkusinum. Á meðfylgjandi mynd virðist þó sem eitthvað sé unganum að renna blóðið til skyldunnar því hann urrar og glennir sig.
Best of Óli Tynes Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Sjá meira