Gjaldþrotum fyrirtækja fjölgaði um rúm 52% í Danmörku 5. janúar 2010 09:01
Frekar dapurlegt met var slegið í Danmörku á síðasta ári. Gjaldþrotum fyrirtækja fjölgaði um 52,5% í landinu miðað við árið á undan og hafa þau aldrei verið fleiri á einu ári í sögu Danmerkur.Samkvæmt tölum sem birtar eru á börsen.dk urðu alls 5,979 fyrirtæki gjaldþrota í Danmörku á síðara ári. Þar að auki var óvenjumikið um að félög væru lögð niður eða þeim slitið.Christian Hilligsöe greinandi hjá Sydbank segir að hægt sé að segja með vissu að frá því árið 1979 er heildartölur voru fyrst teknar saman um gjaldþrot hafi landið orðið vitni að jafn dramatískri þróun hvað gjaldþrot varðar.Fram kemur á börsen.dk að fyrir utan almenn áhrif fjármálakreppunnar á efnhag danskra fyrirtækja hafi þróunin komið sérstaklega hart niður á minni og nýstofnuðum fyrirtækjum landsins.Það er þó ljós í myrkrinu og benda má á að í desember s.l. urðu gjaldþrotin 5,4% færri en í sama mánuði árið áður. Hillingsöe segir að þetta bendi til að hið versta sé yfirstaðið og að betri tíð sé framundan hjá dönskum fyrirtækjum.
Mest lesið „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Viðskipti innlent Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Viðskipti erlent KS við það að kaupa B. Jensen Viðskipti innlent Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Viðskipti innlent Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita Viðskipti innlent Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Viðskipti innlent Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Viðskipti innlent Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira