Draugunum var komuð fyrir í litlum glerflöskum ásamt vígðu vatni til að draga úr andlegum styrk þeirra. Avie segir að draugarnir séu annarsvegasr eldri maður sem bjó í húsi hennar árið 1920 og hinsvegar frek lítil stúlka sem birtist þegar fjölskyldan var í andaglasi.
Avie segir að eftir særinguna í fyrra hafi allt verið með kyrrum kjörum í húsi hennar.
Uppboðið fór fram á netinu og alls skoðuiðu 214.000 manns uppboðssíðuna áður en farið var að bjóða í draugana. Nafn þess sem keypti draugana var ekki birt. Avie segir að þegar búið verður að borga kostnaðinn við særinguna muni afgangurinn af söluverðinu renna til góðgerðarmála.
Margir gerðu grín að þessu uppboði meðan á því stóð. Einn lýsti því yfir að hann væri einnig með tvo drauga á flöskum heima hjá sér. „Ég held þeir séu kallaðir Jim Beam og Johnny Walker," bloggaði hann.