Nýliðar Aftureldingar í N1-deild karla hafa fengið fínan liðsstyrk en tveir leikmenn gengu í raðir félagsins í dag.
Það eru markvörðurinn Hafþór Einarsson, sem kemur frá Akureyri, og miðjumaðurinn Arnar Theodórsson sem lék með Gróttu á síðasta tímabili.
Báðir leikmenn búa yfir mikilli reynslu í efstu deild og munu án vafa styrkja lið Aftureldingar.