Körfubolti

Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammi­stöðu: „Eins og hjá byrj­endum“

Aron Guðmundsson skrifar
Ægir Þór Steinarsson átti erfitt uppdráttar í fyrstu umferð Bónus deildarinnar eins og Stjörnuliðið í heild sinni. 
Ægir Þór Steinarsson átti erfitt uppdráttar í fyrstu umferð Bónus deildarinnar eins og Stjörnuliðið í heild sinni.  Vísir/Pawel

Sérfræðingar Körfuboltakvölds voru í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu Stjörnunnar í fyrstu umferð Bónus deildarinnar á dögunum. 

Stjörnumenn áttu alls ekki góða byrjun á tímabili sínu í Bónus deild karla í körfubolta gegn Valsmönnum á útivelli.

Leikurinn tapaðist, 90-77, en það var kannski það hvernig hann tapaðist sem situr í mönnum.

„Sko, ég var eiginlega bara í sjokki að horfa á þennan leik,“ sagði Benedikt Guðmundsson, einn af sérfræðingum Körfuboltakvölds, um frammistöðu Stjörnunnar.

„Það náttúrulega bara gekk ekkert. Þetta er bara eins og hjá einhverjum byrjendum. Maður bara trúði varla sínum eigin augum og það var sama hvert var litið. Ég er nú búinn að þekkja Ægi Þór frá því hann var polli. Ég hef aldrei séð hann spila svona illa sóknarlega.“

Klippa: Aldrei séð Ægi Þór spila svona illa

Ægir skoraði tvö stig af vítalínunni í leiknum en engin af tveggja stiga tilraunum hans sex fór ofan í körfuna og það sama má segja um fimm tilraunir hans fyrir utan þriggja stiga línuna.

Frammistaðan heilt á litið hafi verið virkilega vond hjá Stjörnunni.

„Emil Barja, þjálfari liðsins, viðurkenndi það bara í viðtali eftir leik. Þetta var bara verulega vont og ég eiginlega svona fann til með honum því að maður þekkir það bara þegar þú ert að taka við nýju starfi. Fyrsti leikur er ekki alltaf unninn. En þú vilt koma með frammistöðu, þú vilt sýna fólki hvað þú ert að setja þarna inn, koma með einhver einkenni. Þú vilt fá svona allavegana stuðningsmenn með þér. Þetta var ekki leikurinn til þess að fá stuðningsmennina með því að ég gæti trúað að það hafi verið neikvæðni í Garðabænum eftir þessa stjörnugölnu frammistöðu.“

Umræðuna úr Körfuboltakvöldi um mjög svo erfiða byrjun Stjörnunnar á tímabilinu í Bónus deildinni má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×