Keflavík og KR spáð Íslandsmeistaratitlunum í körfunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2010 13:43 Keflavíkurkonur eru þegar búnar að vinna einn titil á tímabilinu. Mynd/Daníel
Kvennalið Keflavíkur og karlalið KR munu fagna Íslandsmeistaratitlinum í körfunni næsta vor ef marka má spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna í árlegri spá sem var kunngerð nú áðan á kynningarfundi Iceland Express-deilda karla og kvenna fyrir tímabilið 2010-2011. Haukar og Tindastól munu falla hjá körlunum en Fjölnir fellur hjá konunum. KR er spáð 1. sæti í Iceland Express deild karla á undan Keflavík og nýkrýndum meisturum meistaranna í Snæfelli sem eru nú handhafar fjögurra af fimm titlum í boði í íslenskum körfubolta. Nýliðar KFÍ munu bjarga sér ef marka má spánna en hinir nýliðarnir í Haukum mun falla ásamt Tindastól. Keflavíkurkonur fá mestu samkeppnina frá KR (2. sæti) og Haukum (3. sæti) en Keflavík vann 31 stigs sigur á KR-liðinu í úrslitaleik Lengjubikars kvenna á dögunum. KR vann síðan Hauka í Meistarakeppni kvenna í gær. Spáin rættist ekki í fyrra hjá körlunum en þá var Grindavík spáð titlinum en verðandi meisturum Snæfells var spáð 2. sætinu. Spáin rættist hinsvegar hjá konunum þar sem KR-konum var spáð titlinum sem þær unnu eftir úrslitaeinvígi á móti Hamar sem var spáð 2. sætinu í spánni. Árið á undan rættist spáin hinsvegar hjá körlunum en ekki hjá konunum.Spáin fyrir Iceland Express deild karla 2010-2011: 1. KR 401 stig 2. Keflavík 373 3. Snæfell 372 4. Stjarnan 313 5. Grindavík 287 6. Njarðvík 263 7. Fjölnir 182 8. ÍR 166 9. Hamar 118 10. KFÍ 103 11. Haukar 94 12. Tindastóll 86Spáin fyrir Iceland Express deild kvenna 2010-2011: 1. Keflavík 180 2. KR 153 3. Haukar 147 4. Hamar 140 5. Snæfell 80 6. Grindavík 67 7. Njarðvík 64 8. Fjölnir 33
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Túlkurinn stal meira en tveimur milljörðum króna Sport Íhugaði að lauma mynd af húsinu í myndaalbúm fjölskyldunnar Íslenski boltinn „Svo stolt af þér að vera alltaf trú sjálfri þér“ Sport Fær fyrirliðabandið nítján ára gömul og aðeins á öðru ári í atvinnumennsku Fótbolti Maguire hetja United í bikarnum Enski boltinn LeBron James tók met af Jordan með stórleik sínum Körfubolti Sætti mikilli gagnrýni en framþróunin sé bersýnileg Fótbolti Danska sambandið græddi meira en átta hundruð milljónir Fótbolti Tiger snýr aftur á PGA-mótaröðina Golf Í beinni: Leyton Orient - Man. City | Stríðir C-deildarliðið City? Enski boltinn Fleiri fréttir LeBron James tók met af Jordan með stórleik sínum „Eins og menn hafi bara slökkt á fokking heilanum“ Uppgjörið: Valur - Höttur 92 - 58 | Valsmenn keyrðu yfir Hött í fyrri hálfleik Uppgjörið: Keflavík - ÍR 81-90 | Aðeins Harry Potter getur bjargað Keflavík „Ég er að koma aftur fyrir skemmtilegasta hlutann“ „Held að allir græði á því að hafa svona mann sem leikstjórnanda“ Kjartan: Við erum að vaða á liðin Uppgjör: Njarðvík - KR 103-79 | Njarðvíkingar hefndu bikartapsins með stæl Uppgjör, myndir og viðtöl: Álftanes - Haukar 107-90 | Álftanes frábærir þegar á þurfti að halda Uppgjörið: Þór Þ. - Grindavík 95-104 | Grindvíkingar með stáltaugar í lokin Uppgjör: Stelpurnar stóðu í Tyrkjum fyrir framan troðfulla höll „Þetta er náttúrulega alltaf skrýtið“ Meistarar verja Brynjar: „Allt er þetta ástríða og væntumþykja“ Íslensku stelpurnar vinsælar í Izmit GAZ-leikur kvöldsins: Síðasti séns Hauka á atlögu að björgun? Agravanis bræður ætla með Íslandsmeistaratitilinn í Síkið Jimmy Butler endaði hjá Golden State Durant vill ekki fara til Golden State Sonur Jordans handtekinn með kókaín Lebron segir komu Doncic súrealíska: „Verða mörg augu á okkur“ Ný tækifæri fyrir syni Péturs: „Auðvitað saknar maður þess að vera með þeim“ Pavel rýfur þögnina: „Þetta kemur Keflavík ekkert við“ Warriors íhuga að sækja Durant á nýjan leik Ármann áfram ósigrað eftir háspennuleik í Vesturbæ Tryggvi Snær skilaði sínu þegar Bilbao komst áfram Brynjar Karl krefst þess að ÍSÍ láti af meintu níði í garð Aþenu Allt sem þú þarft að vita um stærstu skipti síðari ára Álftnesingar sóttu stóra skyttu Tekur Pavel við Keflavík? Að frumkvæði Péturs sem leiðir hans og Keflavíkur skildu Sjá meira