Bill Gates, stofnandi Microsoft heldur stöðu sinni sem auðugasti Bandaríkjamaður heimsins samkvæmt lista sem Forbes tímaritið hefur gefið út.
Auðæfi Gates eru metin á 54 milljarða dollara eða um 6.300 milljarða króna. Í öðru sæti á listanum er ofurfjárfesturinn Warren Buffett en auður hans er metinn á 45 milljarða dollara eða tæplega 5.300 milljarða króna.
Sem fyrr er Walton fjölskyldan, eigandi Wal Mart verslunarkeðjunnar, áberandi á listanum. Fjórir meðlimir fjölskyldunnar eiga sæti á topp tíu listanum yfir auðuga Bandaríkjamenn.