Atli: Markvarslan skapaði sigurinn Kristinn Páll Teitsson skrifar 20. nóvember 2010 18:48 Atli Hilmarsson. „
Þetta var alveg frábær leikur. Seinni hálfleikurinn var frábær með þessari markvörslu og vörn sem og að við vorum að klára hraðaupphlaupin vel. Við vorum ekki að fá boltann og stoppa heldur fórum við fljótir upp og kláruðum sóknirnar," sagði Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar eftir 33-25 sigur á FH í Kaplakrika í dag. „Við lentum undir í fyrri hálfleik en ég vissi að þetta myndi koma. Vvið höfum lent í þessu áður og ég veit að þetta kemur þannig ég var ekkert að stressa mig," sagði Atli. „Það er fyrst og fremst markvarslan og vörnin sem skapaði þetta þótt allir mínir leikmenn hafi spilað vel. Geir og Guðmundur spiluðu frábærlega þrátt fyrir að vera báðir 17 og 18 ára gamlir, Heimir er líka að stjórna þessu frábærlega á miðjunni," sagði Atli. Akureyringar eru með fullt hús á toppnum ásamt því að vera komnir í 8-liða úrslit Eimskip bikarsins „Við erum með báða fæturna á jörðinni sem er kannski annað en aðrir halda. Við horfum bara á næsta leik og það fleytir okkur áfram. Við höfum núna spilað nokkra leiki í deild og tvo leiki í bikar taplausir og ég vill bara að þetta haldi áfram" Akureyringar eru mjög heppnir með stuðning á pöllunum þrátt fyrir að vera langt frá heimahögum. Mmargir Akureyringar búsettir í Reykjavík mættu og sýndu stuðning sinn í verki á leiknum í dag. „Við erum oft að fá fullt af fólki sem styður okkur. Núna eigum við heimaleik gegn HK og ég vona að það verði troðfullt. Það er um að gera að gera heimavöllinn að gryfju," sagði Atli að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Enski boltinn Stríðinn hrafn fluttur á Laugardalsvöll Fótbolti Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenski boltinn Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Íslenski boltinn Gunnar mætir þrautreyndum kappa í sumar Sport Aron Einar með en enginn Gylfi Fótbolti Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Handbolti Fleiri fréttir Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Sjá meira
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn