Davíð sagðist vilja í stjórn Blómavals 12. apríl 2010 14:09 Davíð Oddsson. Gat á sig blómum bætt.
Þegar sýnt var að Glitnir var að fara í þrot leituðu forráðamenn hans út um víðan völl eftir einhverjum leiðum til þess að bjarga bankanum. Þeir reyndu meðal annars fyrir sér um hvort Kaupþing vildi kaupa starfsemi Glitnis á Norðurlöndunum. Sömuleiðis leituðu þeir eftir aðstoð frá Seðlabankanum og Landsbankanum. Halldór J. Kristjánsson bankastjóri Landsbankans spurði í framhaldinu Geir H. Haarde forsætisráðherra hvernig tekið yrði í það að Landsbankinn setti fram hugmyndir um lausn á vandanum. Geir svaraði því til að allar hugmyndir yrðu vel þegnar. Bankastjórar Landsbankans settu þá saman tillögu sem var send í Seðlabankann þar sem Davíð Oddsson og Geir Haarde sátu á fundi. Í stuttu máli fólst tillagan í því að eftir ýmsar aðgerðir yrðu Landsbankinn og Glitnir sameinaðir undir nafni Landsbankans. Eignarhald hluthafa Landsbankans í hinum sameinaða banka yrði 40 prósent. Við skýrslutöku hjá Rannsóknarnefnd Alþingis lýsti Davíð framhaldinu þannig að þeir Geir hafi skoðað tillögu Landsbankans og Geir kallað hana vitleysu. Davíð sagði að svo hefði Halldór J. Kristjánsson hring til þess að frétta um viðbrögðin við tillögunni. Davíð svaraði því til að hann gæti fengið ríkisstjórnina og bankastjórnina til þess að samþykkja hana með einu skilyrði. Davíð sagði að Halldór hefði orðið mjög kátur og spurt hvað væri skilyrðið. -Það er að ég komist í stjórn Blómavals. -Er þetta svona vitlaust, spurði þá Halldór. -Já þetta er svona vitlaus, sagði Davíð og lagði á.
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira