Golf

Tiger: Fór í sjálfsskoðun og leist ekki vel á það sem ég sá

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Tiger Woods segist hafa lært gríðarlega mikið á undaförnu ári þó svo hann hafi ekki unnið neitt á árinu. Árið hefur verið rússíbanareið fyrir kylfinginn sem segist vera orðinn sáttari við sjálfan sig en hann var þegar hann byrjaði að spila golf á nýjan leik í apríl.

"Ég hef lært mikið um sjálfan mig og hvernig allt fór til fjandans. Ég hef líka lært af hverju og þurfti að fara í mikla sjálfsskoðun. Það var margt í þeirri skoðun sem mér líkaði illa við," sagði Tiger.

"Ég verð samt að gera það, ég gerði það og er betri maður á eftir. Ég er miklu þroskaðri og betur í stakk búinn til að takast á við lífið.

Tiger mun taka þátt í móti í Shanghai í byrjun nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×