Golf

Birgir Leifur: „Gríðarlega vonsvikinn út í sjálfan mig"

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson.

„Ég er gríðarlega vonsvikinn út í sjálfan mig. Ég missti algjörlega trúna á því sem ég var búinn að gera á einu augnabliki," sagði Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur þegar hann var inntur eftir ástæðum fyrir slæmu gengi hans á fyrstu tveimur keppnisdögunum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina.

Birgir er í þriðja neðsta sæti af alls 157 kylfingum á samtals 11 höggum yfir pari.

Ég var að slá rosalega illa með járnunum og endaði nánast alltaf á verstu hugsanlegu stöðunum á fyrsta hringnum. Þá fór ég að efast um allar ákvarðanir. Á þessum velli er maður rassskelltur ef maður gerir slík mistök," sagði Birgi við visir.is í dag.

Íslandsmeistarinn viðurkennir að staðan sé erfið en ekki vonlaus en hann fær tækifæri til þess að laga stöðu sína á næstu tveimur dögum. Hann er 10 höggum frá 30. sætinu og aðeins tveir stórkostlegir hringir gætu breytt gangi mála hjá Íslandsmeistaranum. Að loknum fjórða keppnisdegi verður keppendum fækkað um helming og þeir leika tvo hringi til viðbótar um 30 efstu sætin.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×