Telma, fyrirliði Hauka: Þetta var alveg geggjað Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2010 13:52 Telma Björk Fjalarsdóttir, fyrirliði Hauka lyftir bikarnum, Mynd/Daníel
Telma Björk Fjalarsdóttir, fyrirliði Hauka, var ótrúleg í fráköstunum í seinni hálfleik í 83-77 sigri Hauka á Keflavík í bikarúrslitaleik kvenna í körfubolta í Laugardalshöllinni í dag. Telma tók ellefu fráköst þar af átta þeirra í sókn auk þess að skora tíu stig. „Ég var ekkert að hugsa út í það hvað ég var búin að taka mörg fráköst, ég ætlaði bara að taka þennan leik," sagði Telma í sigurvímu eftir leikinn. „Við nýttum okkur allt til að þess að undirbúa okkur sem best fyrir leikinn. Við sáum það að það hafði enginn trú á okkur nema við sjálfar," sagði Telma og bætir við: „Þetta undirstrikar það að við ætlum alla leið í vetur," segir Telma. Heather Ezell er leiðtoginn í Haukaliðinu en hinir leikmenn liðsins börðust allar sem ein og hjálpuðu Haukaliðinu að vinna fráköstin 51-32. „Heather er svo ógeðslega góð að hún gerir alla í kringum sig góða. Við vitum það að með hana með okkur þá kemur þetta hjá okkur ef við leggjum allt í þetta," segir Telma og hún var ánægð með mann leiksins, Maríu Lind Sigurðardóttur sem kom með 20 stig og 9 fráköst inn af bekknum. „María Lind var loksins að sýna í hvað henni býr. Hún getur þetta alveg og við vissum það allar. Þetta var bara tímaspursmál um hvenær hún myndi springa út. Þetta var alveg geggjað," sagði Telma kát enda nýbúinn að lyfta bikarnum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Enski boltinn Hermann: Góðlátlegt grín en ekkert ofbeldi Íslenski boltinn „Þegar ég sá hann fara ofan í var ég bara: Guð minn góður“ Körfubolti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Enski boltinn „Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Körfubolti Thea fer í rúmenskt félag með íslenska tengingu Handbolti Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Enski boltinn Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Enski boltinn Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Körfubolti Chelsea - Nott. Forest | Lífsnauðsynleg stig í boði Enski boltinn Fleiri fréttir Annað liðið á tveimur dögum sem kemur til baka eftir að hafa lent 3-1 undir „Þegar ég sá hann fara ofan í var ég bara: Guð minn góður“ „Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Engin Evrópuþynnka og mikilvægur sigur Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Þegar Síkið þagnaði: „Keyri bara á körfuna og legg hann ofan í“ Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Sindri stígur fyrsta skrefið í átt að úrvalsdeild Uppgjörið: Keflavík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Tíu stoðsendingar Martins dugðu skammt í toppslagnum Hvergi nærri hættur með KR „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Sjáðu fyrirliðann Tryggva taka við Evrópubikarnum „Þetta er smá spooky“ Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Sjá meira