Körfubolti

„Við­horf leik­manna angrar mig“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, fer yfir málin með leikmönnum sínum. 
Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, fer yfir málin með leikmönnum sínum.  Vísir/Guðmundur

Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindaíkur, hefði viljað sjá betra hugarfar og jákvæðari viðbrögð við því sem aflaga fór þegar lið hans laut í lægra haldi fyrir KR í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. 

„Það eru kaflar í þriðja og fjórða leikhluta sem fara með leikinn hjá okkur. Við fórum út úr því leikskipulagi sem við settum upp og fórum að sætta okkur við erfið skot. Því fór sem fór,“ sagði Jóhann Þór eftir leik. 

„Svona beint eftir leik þá er það ekki bara tapið sem pirrar mig heldur er það viðhorf leikmanna sem angrar mig miklu meira. Hvernig menn bregðast við skotum sem fara ekki ofan í og reyna ekki að bregðast almennilega við í kjölfar mistaka veldur mér hugarangri,“ sagið Jóhann Þór enn fremur.

„Það vantar vissulega lykilleikmenn hjá okkur og við erum skammt á veg komnir í undirbúningnum en það þýðir ekki að leikmenn geti ekki sýnt jákvætt viðhorf, staðið saman og fylgt því sem lagt er upp með,“ sagði hann ósáttur.

„Þetta er hins vegar vissulega framför frá leiknum við þá í meistara meistaranna en svona beint eftir leik er ekkert eitt frekar en annað sem gladdi mig í spilamennskunni hjá okkur. Kannski kemur það þegar ég horfi á leikinn aftur,“ sagði Jóhann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×