Njarðvíkingar gefa Keflavík leyfi til að nota Nick Bradford Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. apríl 2010 15:47 Nick Bradford í leik með Njarðvík á móti Keflavík í úrslitakeppninni. Mynd/Vilhelm
Keflvíkingar hafa fengið leyfi frá Njarðvík til þess að nota Nick Bradford það sem eftir lifir af úrslitaeinvíginu á móti Snæfelli en bandaríski leikmaður liðsins, Draelon Burns, er meiddur. Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, vildi ekki gefa það formlega út að hann væri búinn að skipta um kana fyrr en eftir æfingu í kvöld. Keflavík er hinsvegar búnir að ganga frá öllum leyfum, bæði hjá KKÍ og Njarðvík og það er því ekkert því til fyrirstöðu að Nick spili þriðja leik úrslitaeinvígisins sem er í Keflavík á morgun. „Hann er með samning við okkur en hann kemur til með að spila með Keflavík. Ég reikna með því. Þeir eru búnir að hafa samband við mig," sagði Jón Guðlaugsson, formaður körfuboltadeildar Njarðvíkur í samtali við Vísi. „Okkur dettur ekki í hug að fara að bregða fæti fyrir hvorki Keflvíkinga eða einhverja aðra ef við getum eitthvað lagt þeim lið. Þetta gerir bara íþróttina skemmtilegri," segir Jón og bendur á að Snæfellingar hafi einnig fengið til sín leikmann sem spilaði með Njarðvík. Jeb Ivey spilaði í gær sinn fyrsta leik á Íslandi síðan að hann spilaði með Njarðvík vorið 2007. „Það er gott að Snæfellingar skyldu fá svona góðan leikmann líka. Hann spilaði í tvö ár í Njarðvík. Þetta eru báðir frábærir einstaklingar og bara gaman að því að þetta skyldi gerast með þessum hætti," sagði Jón.
Dominos-deild karla Mest lesið Vellirnir hálftómir á HM félagsliða Sport Leikmenn sænska kvennalandsliðsins slógust á æfingu Fótbolti Sjáðu Gylfa leggja upp sigurmarkið fyrir Gunnar og öll hin í sigri Víkinga á KR Íslenski boltinn Þrumuleikur frá Jalen Williams og Thunder einum sigri frá titlinum Körfubolti „Lítur út eins og hann vill ekki vera í kringum leikinn“ Sport Þjálfari Evrópumeistaranna ber að ofan og berfættur á æfingu liðsins Fótbolti „Eru að berjast fyrir klúbbinn sinn“ Sport Óskar Hrafn: Lítið gagn af því að tryllast Fótbolti Ómeiddur eftir svakalegan árekstur í Indycar Sport Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Þrumuleikur frá Jalen Williams og Thunder einum sigri frá titlinum Semja við íslenska kjarnann í liði Íslandsmeistaranna Ótrúleg endurkoma og allt jafnt í úrslitaeinvíginu Hin stórstjarna Celtics þurfti einnig að fara undir hnífinn Áhorfið minnkaði um 55 prósent eftir að Caitlin Clark meiddist Íslandsmeistarinn getur orðið NBA meistari Sigtryggur Arnar framlengdi við Tindastól Óvænt stjarna með súperinnkomu af bekknum þegar Pacers komst í 2-1 Þegar neyðin er mest er Caruso næst Kraftaverkamaðurinn Gunnar Már sem þjálfarinn kallar Jesús Júlíus Orri semur við Tindastól Drungilas næstu þrjú árin hjá Tindastóli Íslandsmeistarasystkinin með bikara sem hafa litið betur út Knicks horfir til Dallas í leit að næsta þjálfara Shai setti stigamet þegar OKC jafnaði úrslitaeinvígið Birna snýr aftur og er ein af fjórum sem framlengir Taiwo Badmus staðfestur hjá Stólunum: „Ég er kominn heim“ Snýr aftur til Íslands betri en nokkru sinni áður Má ekki koma inn í íþróttahús í tíu mánuði „Þakklátur fyrir að konan sé tilbúin að leyfa mér að upplifa þetta“ Arnar Guðjónsson tekur við Stólunum Dabbi kóngur framlengir og Þór sækir tvo frá Selfossi „Minn draumur er að fá að spila í úrslitakeppninni“ Endurkomukóngarnir tryggðu sigur á lokasekúndunni Sjúkraþjálfarinn fær stöðuhækkun hjá Þórsliðinu Besti ungi leikmaðurinn í Bónus deildinni semur við Álftanes Nýliðar KR semja við landsliðskonu sem er dóttir fyrrum fyrirliða karlaliðsins Saka sjúkraþjálfarann um kynferðislega áreitni Fyrirliði og framtíðarmaður framlengja í Keflavík Reka þjálfarann þrátt fyrir besta árangurinn í 25 ár Sjá meira