Í kvöld hófust lokaúrslitin í úrslitakeppni Iceland Express-deild karla þegar að Keflavík og Snæfell mættust í fyrsta leik úrslitarimmunnar.
Keflavík vann öruggan sigur í leiknum, 97-78, en liðin mætast næst á fimmtudagskvöldið í Stykkishólmi.
Daníel Rúnarsson ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins var á staðnum og fangaði stemninguna.