Skoðun

Áskorun til ráðamanna þjóðarinnar

Í stefnulýsingu Samfylkingarinnar segir að flokkurinn leggi ,,áherslu á að Íslendingar taki virkan þátt í því fjölþjóða- og alþjóðasamstarfi sem á hverjum tíma er líklegast til þess að stuðla að friði og öryggi jafnt í nágrenni okkar og í heiminum öllum." Jafnframt stendur í stefnuskrá Vinstri grænna að langvarandi kúgun Ísraela á Palestínumönnum verði að linna og að Ísland eigi að ganga úr NATO. Í ljósi þess að báðir ríkisstjórnarflokkarnir kenna sig bersýnilega við friðsamlega utanríkisstefnu vil ég varpa fram tveimur kunnuglegum tillögum.

1. Ísland slíti tafarlaust stjórnmálasambandinu við Ísrael. Í meira en 60 ár hafa ísraelskir zíonistar framið kerfisbundin fjöldamorð á Palestínumönnum, hrakið þá frá heimkynnum sínum og kallað yfir þá kúgun og volæði. Auðvitað hafa Palestínumenn ekki látið það þegjandi yfir sig ganga en skæruliðar þeirra mega sín lítils frammi fyrir gríðarlegum hernaðarmætti Ísraela. Þrátt fyrir að brjóta alþjóðalög æ ofan í æ njóta Ísraelar fjárhagslegs og hernaðarlegs stuðnings bandarískra stjórnvalda og jafnframt hafa Evrópuþjóðir sýnt zíonistum forkastanlega linkind. Hingað til hafa íslenskir ráðamenn fordæmt árásir Ísraela annan daginn en drukkið kaffibolla með þarlendum stjórnvöldum hinn daginn. Slíkt hálfkák er Íslendingum ekki til sóma. Meðan ísraelsk stjórnvöld hegða sér eins og villimenn ætti afstaðan gagnvart Ísrael ekki að vera öðruvísi en gagnvart ríkjum á borð við Norður-Kóreu. Með því að slíta stjórnmálasambandinu gætu Íslendingar sýnt öðrum þjóðum gott fordæmi. Ef fleiri þjóðir settu Ísraelum stólinn fyrir dyrnar væri gríðarlegur þrýstingur settur á Ísraela og vonandi stórt skref stigið í átt að réttlæti og friði fyrir botni Miðjarðarhafs.

2. Íslendingar segi sig úr Atlantshafsbandalaginu. Þótt bandaríski herinn sé farinn af landi brott má ekki gleyma því að Ísland tilheyrir enn hernaðarbandalaginu NATO og aðildin kostar ríkissjóð rúmlega 87 milljónir króna á ári. Eftir fall Sovétríkjanna hefur hlutverk NATO breyst; það hefur fært út anga sína, sniðgengið alþjóðasáttmála og orðið að eins konar taglhnýtingi kapítalískrar heimsvaldastefnu. Bandalagið er meðal annars frægt fyrir að rústa skólum og sjúkrahúsum í Júgóslavíu, aðstoða hernámsöfl stríðsþjáðra landa, beita sér gegn kjarnorkuafvopnun og starfa náið með Ísraelsher. Jafnframt hefur herstjórn bandalagsins allt frá upphafi verið í höndum bandarískra herforingja og ætti því að liggja í augum uppi hverra hagsmunir sitja í fyrirrúmi. Aðild Íslands að NATO er smánarblettur fyrir land og þjóð. Með henni er þjóðin bendluð við eyðileggingu, kúgun og fjöldamorð.

Með því að slíta stjórnmálasambandinu við Ísrael og ganga úr Atlantshafsbandalaginu myndu Íslendingar sýna vestrænni heimsvaldastefnu réttmæta vanþóknun og uppskera þakklæti kúgaðra þjóða í heiminum. Ég skora á ráðamenn þjóðarinnar að leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir betri heimi.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×