Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar 21. október 2026 07:02 Í návígi við krabbamein fær tíminn gjarnan aðra og dýpri merkingu. Það á við hvort sem um er að ræða greiningu eða meðferð og eftir að meðferð lýkur. Tímanum meðan beðið er eftir rannsóknarniðurstöðum í aðdraganda greiningar krabbameins lýsir fólk oft sem einum þeim erfiðasta, með algerri óvissu. Tímanum í krabbameinsmeðferð lýsa margir eins og rússíbana með hæðum og lægðum og sléttum köflum á milli þar sem óljóst er hvað framundan er. Sá tími gleymist seint, bæði sjúklingum og aðstandendum. Þá verður tíminn sérstaklega dýrmætur þegar fólk stendur í þeim sporum að hann sé takmarkaður. Tíminn skiptir líka máli varðandi greiningu og meðferð krabbameins því að það hvenær krabbamein greinist hefur mikla þýðingu fyrir batahorfur og val á meðferð. Einmitt af þeim ástæðum snýst Bleika slaufan í ár um að fræða konur og samfélagið allt um þau einkenni sem geta bent til krabbameins og að hvetja fólk til að bíða ekki úr hófi með að leita læknis. Sem betur fer eru einkenni oftast af völdum annars en krabbameins en þegar þau eru vegna krabbameins skiptir máli að þau greinist sem fyrst svo hægt sé að hefja viðeigandi meðferð. Í öllu þessu skiptir tíminn máli, að engar tafir verði á leiðinni og að allt sé gert sem unnt er, til að tíminn sé sem bestur. Tímann teljum við oft í stundum. Á Bleika deginum sem er í dag sameinast samfélagið allt í stuðningi og hluttekningu með fólki og aðstandendum þeirra sem glíma við krabbamein eða hefur gert það og minnist þeirra sem við höfum misst úr krabbameinum. Bleiki dagurinn einkennist af samstöðu sem við hjá Krabbameinsfélaginu heyrum oft hve miklu máli skiptir fólk. En við heyrum líka af því að hann getur verið áminning um erfiðar stundir og það skulum við hafa bakvið eyrað. Bleiki dagurinn snýst nefnilega ekki bara um að klæðast bleiku frá toppi til táar og gera sér glaðan dag, hann er líka innihaldsríkur. Bleiki dagurinn gefur tækifæri til að skapa góðar og innihaldsríkar stundir með hverjum þeim hætti sem fólki hentar, hvar sem er á heimilum, á vinnustöðum eða í skólum og hvernig sem aðstæður eru. Hver stund skiptir máli og við viljum nýta tímann með sem bestum hætti. Við hjá Krabbameinsfélaginu þökkum samfélaginu af öllu hjarta fyrir stuðninginn í Bleiku slaufunni og fyrir að taka undir með okkur á Bleika daginn. Höfundur er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Þorvaldsdóttir Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Sjá meira
Í návígi við krabbamein fær tíminn gjarnan aðra og dýpri merkingu. Það á við hvort sem um er að ræða greiningu eða meðferð og eftir að meðferð lýkur. Tímanum meðan beðið er eftir rannsóknarniðurstöðum í aðdraganda greiningar krabbameins lýsir fólk oft sem einum þeim erfiðasta, með algerri óvissu. Tímanum í krabbameinsmeðferð lýsa margir eins og rússíbana með hæðum og lægðum og sléttum köflum á milli þar sem óljóst er hvað framundan er. Sá tími gleymist seint, bæði sjúklingum og aðstandendum. Þá verður tíminn sérstaklega dýrmætur þegar fólk stendur í þeim sporum að hann sé takmarkaður. Tíminn skiptir líka máli varðandi greiningu og meðferð krabbameins því að það hvenær krabbamein greinist hefur mikla þýðingu fyrir batahorfur og val á meðferð. Einmitt af þeim ástæðum snýst Bleika slaufan í ár um að fræða konur og samfélagið allt um þau einkenni sem geta bent til krabbameins og að hvetja fólk til að bíða ekki úr hófi með að leita læknis. Sem betur fer eru einkenni oftast af völdum annars en krabbameins en þegar þau eru vegna krabbameins skiptir máli að þau greinist sem fyrst svo hægt sé að hefja viðeigandi meðferð. Í öllu þessu skiptir tíminn máli, að engar tafir verði á leiðinni og að allt sé gert sem unnt er, til að tíminn sé sem bestur. Tímann teljum við oft í stundum. Á Bleika deginum sem er í dag sameinast samfélagið allt í stuðningi og hluttekningu með fólki og aðstandendum þeirra sem glíma við krabbamein eða hefur gert það og minnist þeirra sem við höfum misst úr krabbameinum. Bleiki dagurinn einkennist af samstöðu sem við hjá Krabbameinsfélaginu heyrum oft hve miklu máli skiptir fólk. En við heyrum líka af því að hann getur verið áminning um erfiðar stundir og það skulum við hafa bakvið eyrað. Bleiki dagurinn snýst nefnilega ekki bara um að klæðast bleiku frá toppi til táar og gera sér glaðan dag, hann er líka innihaldsríkur. Bleiki dagurinn gefur tækifæri til að skapa góðar og innihaldsríkar stundir með hverjum þeim hætti sem fólki hentar, hvar sem er á heimilum, á vinnustöðum eða í skólum og hvernig sem aðstæður eru. Hver stund skiptir máli og við viljum nýta tímann með sem bestum hætti. Við hjá Krabbameinsfélaginu þökkum samfélaginu af öllu hjarta fyrir stuðninginn í Bleiku slaufunni og fyrir að taka undir með okkur á Bleika daginn. Höfundur er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun