Samfylkingin sækir á í Hafnarfirði 23. maí 2010 20:15 Hafnarfjörður. Samfylkingin hefur haft hreinan meirihluta í bæjarfélaginu undanfarin átta ár. Mynd/GVA
Samfylkingin virðist vera að sækja á í Hafnarfirði ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Samfylkinguna og Vísir hefur undir höndum. Könnunin var gerð rúmri viku síðar en könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 frá því í byrjun mánaðarins. Í þeirri könnun fékk Samfylkingin fimm menn og var nokkuð langt frá kjörfylgi sínu fyrir fjórum árum þegar flokkurinn fékk sjö bæjarfulltrúa. Könnun Félagsvísindastofnunar bendir hins vegar til þess að Samfylkingin eigi möguleika á að halda hreinum meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Samkvæmt könnuninni þá bætir Sjálfstæðisflokkurinn við sig nokkru fylgi frá síðustu kosningum og fengi tæp 34% og fjóra menn kjörna nú. Vinstri grænir fá tæp 18% og tvo bæjarfulltrúa. Samfylkingin mældist með rúmlega 46% fylgi og fimm bæjarfulltrúa en 11 bæjarfulltrúar sitja í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Næsti maður inn samkvæmt könnunni er bæjarstjórinn Lúðvík Geirsson sem vermir 6. sætið á lista Samfylkingarinnar. Samfylkingin þarf því ekki að bæta við sig miklu fylgi í viðbót til að ná að fella fjórða mann Sjálfstæðisflokksins og því má búast við því að hart verði barist síðustu daga kosningabaráttunnar. Samfylkingin hefur haft hreinan meirihluta í Hafnarfirði undanfarin átta ár.
Kosningar 2010 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira