Golf

Tiger búinn að missa af lestinni í Ástralíu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Það er orðið endanlega ljóst að Tiger Woods nær ekki að verja titil sinn á ástralska meistaramótinu í golfi. Tiger fór þriðja hringinn á 71 höggi og er 10 höggum á eftir efsta manni, Adam Bland, fyrir lokadaginn.

Sem fyrr gekk Tiger afar illa á flötunum og púttin ekki að skila sér niður.

"Ég hef ekki verið að pútta vel. Ef púttin væru að ganga hjá mér þá væri ég í toppslagnum," sagði Tiger.

Sergio Garcia fór hamförum á öðrum hring er hann spilaði á 65 höggum. Hann var í tómu rugli í nótt og spilaði á 77 höggum. Hann er því einnig úr leik í baráttunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×