Gullboð koma í staðinn fyrir Tupperwareboð 22. febrúar 2010 09:42
Þetta hófst með húsmæðrum sem voru lokkaðar í heimboð til að skoða Tupperwareskálar. Síðan komu heimboð með BodyShop vörum og Botox meðferðum. Það nýjasta eru gullboð en þar fara viðskiptin í hina áttina. Á börsen.dk er um nýjasta æðið í heimboðum húsmæðra þar sem konur koma saman, fá gamalt gullskart sitt verðmetið og fara svo heim með ávísun í vasanum. Í Bretlandi er það fyrirtækið Ounces2Pounds sem stendur nú fyrir um 75 gullboðum í hverjum mánuði en hugmyndin kemur upphaflega frá Bandaríkjunum. Þar kom fyrirtækið Glitter2Green fyrsta á markaðinn með þessi gullboð en nafn fyrirtækisins má þýða sem "glys fyrir græna seðla" og er þar vísað til þess að dollaraseðlar eru grænir að lit. Í þeim heimboðum sem Ounces2Pounds skipuleggur eru yfirleitt 12-15 konur samankomnar með gullskart sitt. Verðið sem þær fá fyrir skartið er heimsmarkaðsverð hverju sinni mínus þóknun til kaupandans. Þar sem verð á gulli hefur sjaldan verið hærra en nú er hægt að ná ágætis pening út úr gamla gullskartinu.
Mest lesið Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Engar reglur um merkingar á bílastæðum sem rukkað er fyrir Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Fleiri fréttir Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira