Emil Þór: Ég var svo reiður eftir þetta högg í síðasta leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. apríl 2010 22:40 Emil Þór Jóhannsson fagnar með stuðningsmönnum Snæfells í kvöld. Mynd/Daníel
Emil Þór Jóhannsson átti frábæran leik þegar Snæfell tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil með 36 stiga sigri í Keflavík í kvöld. Emil var með 17 stig í leiknum og hitti úr 5 af 6 skotum sínum „Þetta er hreinn unaður og ég á bara ekki orð yfir þetta. Þetta var þvílíkur draumaleikur," sagði Emil Þór Jóhannsson sem skoraði 10 stig á fyrstu fimm mínútum leiksins þegar Snæfell komst í 27-7. „Ég var kominn hingað til þess að bæta upp fyrir það sem ég missti af í síðasta leik," sagði Emil en hann spilaði ekkert meira í síðasta leik eftir að hafa fengið slæmt höfuðhögg í upphafi seinni hálfleiks. „Við byrjuðum bara á brjálaðri vörn og vorum miklu ákveðnari en þeir. Sóknarleikurinn og flæðið var að smella hjá okkur en þetta byrjaði allt í vörninni," sagði Emil. Emil er ekki búinn að spila marga stóra leiki á ferlinum en það var ekki að sjá mikið stress á honum í kvöld. „Ég viðurkenni alveg að ég var mjög stressaður. Ég var búinn að hugsa um leikinn í allan dag og var búinn að vera frekar stressaður af því að ég hefði ekkert getað hætt að hugsa um leikinn," sagði Emil. „Maður verður bara að koma inn í svona leiki og vera brjálaður. Ég var svo reiður eftir þetta högg í síðasta leik að það keyrði mig bara áfram. Það þýðir ekkert annað en að vera sterkur þegar titilinn er undir og keyra á þetta með fullu sjálfstrausti,"sagði Emil.
Dominos-deild karla Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Fleiri fréttir Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sjá meira