Ekki sammála rökstuðningi Ríkissaksóknara 3. mars 2011 15:49 Guðrún Sesselja Arnardóttir, lögmaður Gunnars Rúnars. „
Ég svo sem bjóst alveg við því að þessu yrði áfrýjað," segir Guðrún Sesselja Arnardóttir, lögmaður Gunnars Rúnars Sigurþórssonar, sem var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness af kröfu um refsingu vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni. Hann var metinn ósakhæfur og dæmdur til vistunar á Sogni. Ríkissaksóknari ákvað að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Í tilkynningu frá Ríkissaksóknara segir að vegna sérstöðu málsins borið saman við önnur mál þar sem deilt hefur verið um sakhæfi hafi verið ákveðið að áfrýja dómnum. „Má þar nefna að ákærði skipulagði verknaðinn með löngum fyrirvara, ákæruvaldið telur að orsakasamhengi á milli ástands ákærða og verknaðar sé óljóst og að lýsingar á háttsemi ákærða í skýrslum geðlækna og hans eigin framburði sé ekki í fullu samræmi við þær skilgreiningar sem byggt er á," segir í tilkynningu frá Ríkissaksóknara. Guðrún Sesselja segist ekki vera sammála þessu og bendir á að í dómi héraðsdóms hafi tvær matsgerðir verið samhljóða þegar lagt var mat á geðheilbrigði Gunnars Rúnars. Með áfrýjuninni fer Ríkissaksóknari fram á að Gunnar Rúnar verði sakfelldur í samræmi við ákæru og hann dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Morðið á Hannesi Þór Helgasyni Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira