Golf

Tiger hlær að eigin óförum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger og Fallon voru léttir á því.
Tiger og Fallon voru léttir á því.
Kylfingurinn Tiger Woods kom ansi mörgum í opna skjöldu er hann ákvað að mæta í spjallþátt Jimmy Fallon. Fallon og kollegar hans hafa lítið annað gert síðustu 18 mánuði en gera grín að Tiger.

Tiger virtist þó vera í léttu skapi og hló er Fallon þakkaði honum fyrir allt efnið sem hann hefði skaffað sér síðustu mánuði.

Tiger sló einnig á létta strengi og er hann var spurður hvað hann hefði verið að aðhafast síðustu 18 mánuði sagði Tiger: "Spila lélegt golf". Uppskar hann mikinn hlátur fyrir.

Þeir Tiger og Fallon ræða ýmislegt í viðtalinu og meðal annars nýja húsið hans Tigers sem er einstakt. Fallon óskaði honum til hamingju með að hafa eignast heilt land.

Sjón er sögu ríkari og má sjá þetta skemmtilega spjall hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×