Golf

Watney fagnaði sigri á heimsmótinu á Doral vellinum

Nick Watney sigraði á heimsmótinu í golfi sem lauk á Doral vellinum í Miami í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 29 ára gamli bandaríski kylfingur sigrar á heimsmótaröðinni.
Nick Watney sigraði á heimsmótinu í golfi sem lauk á Doral vellinum í Miami í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 29 ára gamli bandaríski kylfingur sigrar á heimsmótaröðinni. AP
Nick Watney sigraði á heimsmótinu í golfi sem lauk á Doral vellinum í Miami í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 29 ára gamli bandaríski kylfingur sigrar á heimsmótaröðinni. Hann hefur hægt og bítandi skipað sér í hóp bestu kylfinga heims en hann lék lokahringinn á 5 höggum undir pari eða 67 höggum. Watney lék samtals á 16 höggum undir pari var tveimur höggum betri en Dustin Johnson.

Fyrir sigurinn fékk Watney um 160 milljónir kr. „Ég er stoltur að ná að sigra á móti þar sem 50 bestu kylfingar heims eru á meðal keppenda," sagði Watney.

Golfkennarinn Butch Harmon brost breitt í gær enda eru þeir Watney og Johnson báðir „nemendur" hjá hinum þekkta kennara. Watney hefur verið undir handleiðslu Harmon frá því hann var í háskólaliði Fresno State og á þeim tíma var hann alls ekki á meðal þeirra hæfileikaríkustu í íþróttinni.

Watney hefur sýnt mikinn stöðugleika en hann hefur ávallt endað í hópi 10 efstu á þeim mótum sem hann hefur tekið þátt í á þessu ári.

Francesco Molinari, frá Ítalíu, endaði í þriðja sæti ásamt Anders Hansen frá Danmörku. Hansen er í 50. sæti heimslistans og þar þarf hann að vera næstu tvær vikurnar til þess að öðlast keppnisrétt á Mastersmótinu sem hefst í apríl.

Tiger Woods náði besta hringnum á þessu ári þegar hann lék síðustu 18 holurnar á 66 höggum eða 6 undir pari. Woods endaði í 10. sæti og er það besti árangur hans í 9 mánuði á PGA mótaröðinni.

„Ég vil vinna golfmót og ég gerði það ekki í þessari viku. Það eru samt sem áður batamerki á leik mínum og ég mun taka það með mér í næsta mót," sagði Woods.

Staða efstu manna

Nick Watney (67-70-68-67) 272 högg

Dustin Johnson (69-69-65-71) 274 högg

Anders Hansen (71-69-68-67= 275 högg

Francesco Molinari (68-68-70-69) 275 högg

Matt Kuchar (68-69-68-71) 276 högg

Luke Donald (67-72-66-72) 277 högg

Adam Scott (68-70-68-71) 277 högg

Rickie Fowler (71-73-68-66) 278 högg

Hunter Mahan (64-71-71-73) 279 högg

Jonathan Byrd (70-74-68-68) 280 högg

Padraig Harrington (68-71-68-73) 280 högg

Martin Laird (67-70-70- 73) 280 högg

Rory McIlroy (68-69-69-74) 280 högg

Tiger Woods (70-74-70-66) 280 högg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×