Golf

Masters:Tiger Woods ætlar sér ekkert annað en sigur

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Tiger Woods hefur ekki verið líkur sjálfum sér í golfíþróttinni undanfarna 17 mánuði.
Tiger Woods hefur ekki verið líkur sjálfum sér í golfíþróttinni undanfarna 17 mánuði. AP
Tiger Woods hefur ekki verið líkur sjálfum sér í golfíþróttinni undanfarna 17 mánuði. Í gær sýndi Woods gamla takta og þokaði sér í þriðja sætið á Mastersmótinu á Augusta vellinum og segir bandaríski kylfingurinn að allur undirbúningur hans á undanförnum mánuðum hafi miðað að því að toppa á réttum tíma í byrjun apríl 2011.

Woods hefur hrapað eins og steinn niður heimslistann eftir að einkalíf kappans varð helsta fréttaefnið í lok ársins 2009. Woods hefur ekki sigrað á golfmóti í 17 mánuði og hann hefur ekki unnið risamót frá árinu 2008.

Woods hefur sigrað á Mastersmótinu fjórum sinnum á ferlinum og alls hefur hann unnið 14 risamót. Aðeins Jack Nicklaus hefur unnið fleiri risamót eða alls 18.

Rory McIlroy frá Norður-Írlandi er efstur þegar keppni er hálfnuð á 10 höggum undir pari en Woods er aðeins þremur höggum á eftir. Woods lék á 66 (-6) höggum í gær og er það næst besti árangur hans frá upphafi á Augusta vellinum.

„Hugmyndin var að toppa á réttum tíma fyrir þetta mót,“  sagði Woods eftir hringinn í gær en hann hefur unnið að sveiflubreytingum með nýjum þjálfara – Sean Foley, frá því í ágúst á síðasta ári.

„Við reynum að ná fjórum „toppum“ á hverju ári og það var gott fyrir mig að fara í gegnum þessar breytingar. Það var jákvætt og gott, og við erum á þessum stað í dag. Aðalatriðið er að vera í þeirri aðstöðu á sunnudaginn að eiga möguleika á sigri á síðustu 9 holunum,“  sagði Woods í gær.


Tengdar fréttir

Masters: McIlroy vonast til þess að hafa lært af reynslunni

Rory McIlroy er ein "heitasta stjarnan“ í golfíþróttinni um þessar mundir og frægðarsól hans reis enn hærra í gær þegar Norður-Írinn tyllti sér í efsta sætið á Mastersmótinu á fyrsta keppnisdegi risamótsins. McIlroy, sem er aðeins 21 ár gamall lék á 7 höggum undir pari vallar eða 65 höggum og deilir hann efsta sætinu með Spánverjanum Alvaro Quiros.

Masters: Tiger er sex höggum á eftir efstu mönnum

Tiger Woods er bjartsýnn á að geta blandað sér í baráttuna um sigurinn á Mastersmótinu í golfi eftir að hafa leikið Augusta völlinn á einu höggi undir pari vallar á fyrsta keppnisdegi risamótsins. "Ég er aðeins sex höggum á eftir efstu mönnum og það er nóg eftir,“ sagði Woods í gær en hann hefur fallið hratt niður heimslistann að undanförnu og er hann í 7. sæti.

Masters: McIlroy og Quiros gáfu tóninn á Augusta

Rory McIlroy frá Norður-Írlandi og Spánverjinn Alvaro Quiros deila efsta sætinu að loknum fyrsta keppnisdegi á Mastersmótinu í golfi á Augustavellinum í Georgíu í Bandaríkjunum. Þeir léku báðir á 7 höggum undir pari eða 65 höggum á fyrsta risamóti ársins. Y.E Yang ig K.J. Choir eru þar á eftir á 5 höggum undir pari. Phil Mickelson hóf titilvörnina með því að leika á -2 eða 70 höggum og Tiger Woods er einu höggi þar á eftir.

Masters: Mickelson heiðraði Seve Ballesteros

Phil Mickelson sá um hátíðarkvöldverð á Augusta golfvellinum í gærkvöld þar sem að fyrrum sigurvegurum mótsins er boðið. Spánverjinn Seve Ballesteros, sem tvívegis hefur sigrað á mótinu, gat ekki mætt að þessu sinni vegna veikinda eftir erfiða meðferð vegna heilaæxlis. Mickelson tileinkaði Ballesteros kvölverðaboðið og var spænskur matur í hávegðum hafður.

Masters: Rory McIlroy efstur en Tiger Woods sýndi gamla takta

Norður-Írinn Rory McIlroy heldur sínu striki á Mastersmótinu í golfi og er hann efstur á 10 höggum undir pari vallar þegar keppni er hálfnuð. Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 21 árs gamli kylfingur er efstur að loknum 36 holum á risamóti. Tiger Woods átti frábæran dag en hann þokaði sér upp í þriðja sætið með því fá 9 fugla og 3 skolla á hringum í dag sem hann lék á -6 eða 66 höggum.

Masters: Mickelson bætir stöðu sína

Það lítur út fyrir að spennan verði mikil á Mastersmótinu í golfi á Augusta vellinum í Georgíu en keppni á öðrum keppnisdegi hófst um hádegi að íslenskum tíma og verður leikið fram undir miðnætti. Rory McIlroy frá Norður-Írlandi og Spánverjinn Alvaro Quiros voru efstir á 7 höggum undir pari eftir fyrsta hringinn og þeir hafa báðir hafið leik í dag. McIlroy hefur leikið 2 holur þegar þetta er skrifað og fékk hann fugl á 2. Braut og er hann því á 8 höggum undir pari líkt og KJ Choi frá Suður-Kóreu en hann er einnig á 8 höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×