Golf

Masters: McIlroy vonast til þess að hafa lært af reynslunni

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Rory McIlroy er ein "heitasta stjarnan“ í golfíþróttinni um þessar mundir og frægðarsól hans reis enn hærra í gær þegar Norður-Írinn tyllti sér í efsta sætið á Mastersmótinu á fyrsta keppnisdegi risamótsins.
Rory McIlroy er ein "heitasta stjarnan“ í golfíþróttinni um þessar mundir og frægðarsól hans reis enn hærra í gær þegar Norður-Írinn tyllti sér í efsta sætið á Mastersmótinu á fyrsta keppnisdegi risamótsins. AP
Rory McIlroy er ein „heitasta stjarnan" í golfíþróttinni um þessar mundir og frægðarsól hans reis enn hærra í gær þegar Norður-Írinn tyllti sér í efsta sætið á Mastersmótinu á fyrsta keppnisdegi risamótsins. McIlroy, sem er aðeins 21 ár gamall lék á 7 höggum undir pari vallar eða 65 höggum og deilir hann efsta sætinu með Spánverjanum Alvaro Quiros.

McIlroy vonast til þess að hann hafi lært af slæmri reynslu sinni frá Opna breska meistaramótinu á síðasta ári þar sem hann var efstur á 63 höggum að loknum fyrsta hringum á St. Andrews í Skotlandi en hann gerði út um vonir sínar á öðrum hringum sem hann lék á 80 höggum.

„Ég upplifði mikil vonbrigði eftir þann hring en eftir á að hyggja þá held ég að hafi lært gríðarlega mikið – og þetta mótlæti er hluti af því að þroskast sem atvinnukylfingur. Ég get lært af þeirri reynslu og ég veit hvernig tilfinning það er að leika á risamóti og vera í efsta sæti eftir fyrsta keppnisdaginn," sagði McIlroy en hann gerði engin mistök á fyrsta hringnum þar sem hann fékk 7 fugla og aðrar brautir lék hann á pari. „Ég hefði vel getað leikið betur, ég fékk tækifærin til þess, en þetta var góð byrjun. Mér líður vel og vonandi get ég haldið áfram að leika vel," sagði McIlroy.

Mastersmótið er í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og hefst útsendingin í kvöld kl. 19.00.



Staðan að loknum fyrsta keppnisdegi: Par 72:

65 Rory McIlroy, Alvaro Quiros

67
K J Choi, Y.E. Yang

68
Ricky Barnes, Matt Kuchar

69
Trevor Immelman, Charl Schwartzel, Ross Fisher, Sergio Garcia, Gary Woodland, Geoff Ogilvy, Brandt Snedeker

70
Retief Goosen, Kyung-Tae Kim, Hiroyuki Fujita, Phil Mickelson, Sean O'Hair, Paul Casey, Camilo Villegas, Rickie Fowler, Gregory Havret, Ryan Moore

71
Ryo Ishikawa, Tiger Woods, Miguel Angel Jimenez, Ryan Palmer, Stewart Cink, Angel Cabrera, Fred Couples

72
Steve Stricker, Nick Watney, Hideki Matsuyama, Adam Scott, Anders Hansen, David Toms, Heath Slocum, Jason Day, Alex Cejka, Peter Hanson, D.A. Points, Robert Karlsson, David Chung, Peter Uihlein, Jim Furyk, Luke Donald, Jhonattan Vegas, Lee Westwood

73
Zach Johnson, Jeff Overton, Bubba Watson, Jin Jeong, Jose-Maria Olazabal, Kevin Na, Anthony Kim, Ben Crane, Justin Rose, Bo Van Pelt, Jonathan Byrd, Sandy Lyle (Sco), Tim Clark, Larry Mize, Jason Bohn

74
Jerry Kelly, Charley Hoffman, Rory Sabbatini, Graeme McDowell, Dustin Johnson, Steve Marino, Bill Haas, Yuta Ikeda, Martin Laird, Ian Poulter, Edoardo Molinari

75 Francesco Molinari, Nathan Smith, Davis Love III, Lucas Glover, Lodewicus Oosthuizen, Kevin Streelman, Aaron Baddeley, Hunter Mahan, Robert Allenby, Ernie Els, Carl Pettersson, Stuart Appleby

76
Vijay Singh, Mike Weir, Lion Kim, Mark Wilson

77
Mark O'Meara, Padraig Harrington

78
Ian Woosnam, Ben Crenshaw, Martin Kaymer

79
Tom Watson

80
Arjun Atwal, Craig Stadler

83 Henrik Stenson


Tengdar fréttir

Masters: Tiger er sex höggum á eftir efstu mönnum

Tiger Woods er bjartsýnn á að geta blandað sér í baráttuna um sigurinn á Mastersmótinu í golfi eftir að hafa leikið Augusta völlinn á einu höggi undir pari vallar á fyrsta keppnisdegi risamótsins. "Ég er aðeins sex höggum á eftir efstu mönnum og það er nóg eftir,“ sagði Woods í gær en hann hefur fallið hratt niður heimslistann að undanförnu og er hann í 7. sæti.

Masters: McIlroy og Quiros gáfu tóninn á Augusta

Rory McIlroy frá Norður-Írlandi og Spánverjinn Alvaro Quiros deila efsta sætinu að loknum fyrsta keppnisdegi á Mastersmótinu í golfi á Augustavellinum í Georgíu í Bandaríkjunum. Þeir léku báðir á 7 höggum undir pari eða 65 höggum á fyrsta risamóti ársins. Y.E Yang ig K.J. Choir eru þar á eftir á 5 höggum undir pari. Phil Mickelson hóf titilvörnina með því að leika á -2 eða 70 höggum og Tiger Woods er einu höggi þar á eftir.

Masters: Rástímarnir fyrstu tvo keppnisdagana

Phil Mickelson, sem hefur titil að verja á Mastersmótinu í golfi, verður í ráshóp með Geoff Ogilvy og áhugamanninum Peter Uihlein á fyrstu tveimur keppnisdögunum á fyrsta risamóti ársins. Uihlein sigraði á opna bandaríska áhugamannamótinu á síðasta ári og samkvæmt venju fær hann þann heiður að leika með sigurvegaranum á Mastersmótinu þegar hann hefur titilvörnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×