Golf

Masters: McIlroy og Quiros gáfu tóninn á Augusta

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Rory McIlroy frá Norður-Írlandi og Spánverjinn Alvaro Quiros deila efsta sætinu að loknum fyrsta keppnisdegi á Mastersmótinu í golfi á Augustavellinum í Georgíu í Bandaríkjunum.
Rory McIlroy frá Norður-Írlandi og Spánverjinn Alvaro Quiros deila efsta sætinu að loknum fyrsta keppnisdegi á Mastersmótinu í golfi á Augustavellinum í Georgíu í Bandaríkjunum. AP
Rory McIlroy frá Norður-Írlandi og Spánverjinn Alvaro Quiros deila efsta sætinu að loknum fyrsta keppnisdegi á Mastersmótinu í golfi á Augustavellinum í Georgíu í Bandaríkjunum. Þeir léku báðir á 7 höggum undir pari eða 65 höggum á fyrsta risamóti ársins. Y.E Yang ig K.J. Choir eru þar á eftir á 5 höggum undir pari. Phil Mickelson hóf titilvörnina með því að leika á -2 eða 70 höggum og Tiger Woods er einu höggi þar á eftir.

McIlroy gerði engin mistök og fékk hann sjö fugla á hringnum. Quiros gerði enn betur og fékk 8 fugla og einn skolla.

Woods fékk þrjá fugla á hringnum og tvo skolla, en hann hefur alls ekki náð sér á strik á undanförnum mánuðum. Mickelson fékk þrjá fugla á fyrstu 15 holunum en hann fékk skolla á þeirri 18.

Englendingurinn Lee Westwood sem er annar á heimslistanum er á pari vallar eða 72 höggum en Þjóðverjinn Martin Kaymer sem er efstur á heimslistanum er eflaust að huga að heimferð á morgun því hann lék afar illa á fyrsta hringnum eða 78 höggum eða 6 höggum yfir pari.

Svíinn Henrik Stenson er neðstur eftir fyrsta keppnisdaginn á 83 höggum eða 11 höggum yfir pari vallar. Írinn Padraig Harrington er í tómu tjóni þessa dagana en hann lék á 77 höggum eða +5. Gamla brýnið Tom Watson verður ekki í baráttunni um sigurinn líkt og á Opna breska meistaramótinu árið 2009 en hann lék á 79 höggum.

Englendingurinn Luke Donald sem sigraði á par 3 holu mótinu er ekki líklegur til þess að rjúfa hefðina og sigra á báðum mótunum – par 3 holu mótinu og Mastersmótinu. Það hefur aldrei gerst og Donald er 7 höggum á eftir efstu mönnum eftir að hafa leikið á pari á fyrsta hringnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×