NBA í nótt: Chicago og Miami á sigurbraut Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. apríl 2011 09:00 Mynd/AP
Chicago Bulls og Miami Heat eru bæði búin að taka 2-0 forystu í einvígum sínum í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Chicago vann sigur á Indiana, 96-90, í jöfnum leik þar sem að Derrick Rose fór enn og aftur á kostum með liði þeirra rauðklæddu. Hann skoraði 36 stig, tók átta fráköst og gaf sex stoðsendingar. Kyle Korver skoraði mikilvæga körfu þegar rúm mínúta var til leiksloka er hann kom Chicago fimm stigum yfir, 90-85, með þriggja stiga körfu. Í báðum leikjum liðanna í rimmunni hefur Indiana haft í fullu tré við Chicago sem náði besta árangri allra liða í NBA-deildinni í vetur. Rimman færist nú yfir til Indianapolis þar sem að næstu tveir leikir fara fram. Chicago var með frumkvæðið lengst af í leiknum í nótt en Indiana náði svo forystunni um miðjan fjórða leikhluta. Þá tók Rose til sinna mála og skoraði níu af næstu ellefu stigum Chicago í leiknum. Carlos Boozer skoraði sautján stig fyrir Chicago og tók þar að auki sextán fráköst. Danny Granger skoraði nítján stig fyrir Indiana en leikstjórnandinn Darren Collison meiddist á ökkla í fyrri hálfleik og er óvíst um þátttöku hans í næsta leik liðanna. Miami vann sannfærandi sigur á Philadelphia, 94-73. Yfirburðir Miami voru gríðarlegir en staðan í hálfleik var 59-31. LeBron James, Chris Bosh og Dwyane Wade skoruðu hver fyrir sig meira í fyrri hálfleik en allt byrjunarlið Philadelphia til samans. Það segir sína sögu. James endaði með 29 stig í leiknum, Bosh var með 21 stig og ellefu fráköst og Wade fjórtán stig. Miami hefur nú unnið sautján af síðustu 20 leikjum sínum í deildinni. Þetta var næstlægsta stigaskor Philadelphia í úrslitakeppninni í 56 ár. Thaddeus Young skoraði átján stig fyrir liðið og Evan Turner fimmtán. Byrjunarlið Miami endaði á að skora 76 stig samanlagt í leiknum en Philadelphia samtals 29.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira