LeBron James var með 34 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar í 98-90 útisigri Miami Heat á Atlanta Hawks. Hawks-liðið vann upp 20 stiga mun í fjórða leikhlutanum en Miami tryggði sér sigurinn með 10-2 spretti á lokakaflanum þar sem James Jones setti niður tvær þriggja stiga körfur.
„Halda okkar striki. Það er það eina sem Spo (Erik Spoelstra, þjálfari Miami) talaði um. Við verðum að halda okkar striki og þá komust við í gegnum allt," sagði LeBron James og bætti við: „Það tók okkur 81 leik að komast á þennan stað en það mikið meiri vinna framundan," sagði James.
Miami fékk góðar fréttir skömmu eftir að sigurinn var í höfn en þá fréttist frá Washington að Boston hafði tapað fyrir Washington í framlengingu. Þar með var ljóst að Miami er öruggt með annað sætið í Austurdeildinni á eftir Chicago og hefur Miami-liðið því heimavallarrétt á Boston ef liðin mætast í úrslitakeppninni.
Dwyane Wade skoraði 21 stig fyrir Miami og Chris Bosh var með 15 stig. Josh Smith skoraði 17 stig fyrir Atlanta og Jamal Crawford var með 13 stig.

Dirk Nowitzki var með 23 stig og 12 fráköst þegar Dallas Mavericks komst upp fyrir Los Angeles Lakers í baráttunni um annað sætið í Vesturdeildinni með því að vinna 98-91 útisigur á Houston Rockets í framlengdum leik. Shawn Marion og Jason Terry voru báðir með 21 stig fyrir Dallas en Kevin Martin skoraði 28 stig fyrir Houston sem á ekki lengur möguleika á því að komast í úrslitakeppnina.
Kevin Durant skoraði 32 stig og Russell Westbrook var með 30 stig og 9 stoðsendingar þegar Oklahoma City Thunder vann 120-112 sigur á Sacramento Kings. Þetta var fimmti sigur Thunder-liðsins í röð. Nýliðinn DeMarcus Cousins var með 30 stig og 9 fráköst hjá Sacramento og þeir Marcus Thornton og Beno Udrih skoruðu báðir 21 stig.
J.R. Smith skoraði 22 stig fyrir Denver Nuggets í 134-111 sigri á Golden State Warriors en alls skoruðu níu leikmenn Denver-liðsins tíu stig eða meira. Þetta var fimmtugasti sigur liðsins á tímabilinu og er liðið að ná því fjórða tímabilið í röð. Kosta Koufos skoraði 18 stig fyrir Denver en þeir Stephen Curry og Dorell Wright voru báðir með 27 stig fyrir Golden State.

Channing Frye skoraði 33 stig þegar Phoenix Suns vann 135-127 sigur á Minnesota Timberwolves eftir framlengdan leik en þetta var fjórtánda tap Timberwolves-liðsins í röð. Jared Dudley skoraði 26 stig fyrir Phoenix og Grant Hill var með 21 stig. Michael Beasley skoraði 26 stig og Anthony Randolph var með 24 stig.
Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt:

New Jersey Nets-Charlotte Bobcats 103-105
Philadelphia 76ers-Orlando Magic 85-95
Washington Wizards-Boston Celtics 95-94 (framlengt)
Detroit Pistons-Cleveland Cavaliers 101-110
Milwaukee Bucks-Toronto Raptors 93-86
New Orleans Hornets-Utah Jazz 78-90
Houston Rockets-Dallas Mavericks 91-98 (framlengt)
Denver Nuggets-Golden State Warriors 134-111
Phoenix Suns-Minnesota Timberwolves 135-127 (framlengt)
Sacramento Kings-Oklahoma City Thunder 112-120