Blake Griffin valinn besti nýliði ársins í NBA-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2011 19:00 Blake Griffin. Mynd/AP
Bandarískir fjölmiðlar hafa grafið það upp að Blake Griffin, leikmaður Los Angeles Clippers, hefur verið kosinn besti nýliði ársins í NBA-deildinni. Þetta kemur ekki mikið á óvart enda átti þessi mikli troðslukóngur frábært fyrsta tímabil í deildinni eftir að hafa misst af tímabilinu á undan vegna meiðsla. Griffin var með 22,5 stig, 12,1 frákast og 3,8 stoðsendingar að meðaltali í leik en hann spilaði alla 82 leikina á tímabilinu. Griffin var líkafastagestur í samantektum NBA-deildarinnar á flottustu tilþrifunum og átti alltaf tvær til þrjár frábærar troðslur í hverjum leik. Giffin var valinn besti nýliði Vesturdeildarinnar alla sex mánuðina á tímabilinu og varð þar með fyrsti leikmaðurinn til að ná þar fullu húsi síðan að Chris Paul gerði það New Orleans tímabilið 2005-06. Griffin varð í fjórða sæti í fráköstum og í tólfta sæti í stigaskori en enginn annar nýliði komst inn á topp 45 í stigaskori og inn á topp 20 í fráköstum. Griffin náði þó ekki að breyta gengi liðsins mikið en Los Angeles Clippers liðið missti af úrslitakeppninni í þrettánda sinn á síðustu fjórtán árum og vann aðeins 32 af 82 leikjum sínum á leiktíðinni. Griffin sá hinsvegar til þess að Clippers-liðið var eitt vinsælasta liðið í deildinni með tilþrifum sínum inn á vellinum.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira