NBA: Chicago og Lakers töpuðu bæði í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2011 09:00 Dirk Nowitzki var flottur í nótt. Mynd/AP
Chicago Bulls og Los Angeles Lakers eru bæði óvænt 0-1 undir í undanúrslitaeinvígum sínum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar eftir tap á heimavelli í nótt. Atlanta Hawks vann 8 stiga sigur í Chicago og Dallas vann upp 16 stiga forskot Lakers og tryggði sér sigur í blálokin í Los Angeles. Dirk Nowitzki var með 28 stig og 14 fráköst og setti niður tvö mikilvæg vítaskot 19,5 sekúndum fyrir leikslok þegar Dallas Mavericks vann 96-94 sigur á Los Angeles Lakers. Dallas lenti 16 stigum undir í seinni hálfleiknum en náði frábærum endaspretti og vann síðustu 3 mínútur og 32 sekúndur leiksins 9-2. Kobe Bryant skoraði 21 af 36 stigum sínum í seinni hálfleik en það gekk ekkert upp hjá honum í tveimur síðustu sóknum Lakers og í þeirri síðustu klikkaði hann á þriggja stiga skoti sem hefði unnið leikinn. Kobe hitti úr 14 af 29 skotum sínum í leiknum en hann átti enga stoðsendingu á þeim 35 mínútum sem hann spilaði. Pau Gasol var með 15 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar fyrir Lakers-liðið en Lamar Odom skoraði 15 stig og tók 12 fráköst. Jason Terry skoraði 15 stig fyrir Dallas og Tyson Chandler var með 11 stig, 9 fráköst og 3 varin skot. Jason Kidd var með 11 stoðsendingar og 7 stig hjá Dallas.Joe JohnsonMynd/APJoe Johnson skoraði 34 stig í 103-95 útisigri Atlanta Hawks á Chicago Bulls en Atlanta heldur því áfram að koma á óvart eftir að hafa slegið Orlando Magic út í fyrstu umferðinni. Bulls-liðið tapaði ekki aðeins leiknum heldur missti það Derrick Rose einnig haltrandi af velli á lokasekúndum leiksins. Hawks-liðið lagði gruninn að sigrinum með 15-2 spretti í kringum leikhlutaskiptin í þriðja og fjórða en eftir hann var Atlanta 80-71 yfir. Johnson skoraði 8 stig á þeim kafla en hann hitti úr öllum fimm þriggja stiga skotum sínum og alls úr 12 af 18 skotum sínum. Jamal Crawford var með 22 stig fyrir Atlanta en hjá Chicago Bulls var Rose með 24 stig og 10 stoðsendingar (hitti úr 11 af 27 skotum) og Luol Deng skoraði 21 stig. Úrslitakeppni NBA-deildarinnar:Mynd/APAusturdeildin Chicago Bulls-Atlanta Hawks 95-103 (Staðan er 0-1) Miami Heat-Boston Celtics mætast í kvöld í Miami (Staðan er 1-0)Vesturdeildin Los Angeles Lakers-Dallas Mavericks 94-96 (Staðan er 0-1) Oklahoma City Thunder-Memphis Grizzlies mætast í kvöld í Oklahoma (Staðan er 0-1)
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira