LeBron James: Ég er ekki betri en Jordan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. maí 2011 09:00 LeBron James. Mynd/AP
Scottie Pippen talaði um það í úrvarpsviðtali á ESPN á föstudaginn að LeBron James gæti hugsanlega verið besti körfuboltamaður sögunnar og þar með betri en Michael Jordan. Það eru margir sem eru ekki sammála þessari yfirlýsingu fyrrum liðsfélaga Jordan hjá Chicago Bulls og einn af þeim er LeBron James sjálfur. „Ég er ekki betri en Jordan. Michael var ótrúlegur leikmaður og ég á langa leið eftir þar til að ég kemst í hóp með þeim bestu sem hafa spilað," sagði LeBron James. „Það er líka fullt af öðrum frábærum leikmönnum sem hafa spilað í þessarri deild. Larry Bird og Kareem Abdul-Jabbar og allir þeir sem hafa unnið alla þessa hringi eins og Bill Russell," sagði James. „Ég er þakklátur og auðmjúkur að heyra þessi orð Pippen ekki síst þar sem að hann var liðsfélagi Jordan og fékk að fylgjast með honum á hverjum degi. Ég ætla ekki að sitja hér og segja að ég sé betri en Jordan. Ég er ekki betri en Jordan," sagði James sem er fjórum sigrum frá fyrsta meistaratitli sínum. Jordan og Pippen unnu sex meistaratitla saman með Chicago Bulls á árunum 1991 til 1998. Michael Jordan var 28 ára þegar hann vann fyrsta titilinn sinn 1991 en LeBron James verður 27 ára í lok desember næstkomandi.
NBA Mest lesið Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Körfubolti Leysti frá skjóðunni um hvað gerðist í þriðja hring Sport „Ég væri dáinn ef hún væri ekki hér“ Enski boltinn Synir Emile Heskey spiluðu saman í fyrsta sinn fyrir City Enski boltinn Hvergi nærri hætt: „Markmiðið var alltaf að sýna gömlu góðu Berglindi“ Íslenski boltinn Stjörnustjarfur þegar hann sá Zola á Ryder bikarnum Golf Chiesa græðir á óheppni landa síns Fótbolti Velskur slagur og meistarar mætast í sextán liða úrslitum Enski boltinn Stífla Álvarez brast í dramatískum sigri Atlético Fótbolti Kristófer djarfur í Fantasy: Tuttugu mínusstig í síðustu tveimur umferðum Enski boltinn Fleiri fréttir Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Sjá meira