Terry ætlar að taka af sér bikar-tattúið ef Dallas tapar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2011 20:30 Jason Terry. Mynd/AP
Jason Terry vakti athygli í síðustu viku þegar upp komst að hann væri búinn að láta tattúera NBA-bikarinn á upphandleginn á sér en Terry hefur aldrei náð því að vera NBA-meistari. Terry og félagar í Dallas Mavericks eru komnir alla leið í úrslitaeinvígið á móti Miami Heat og er fyrsti leikur einvígisins í Miami í kvöld. „Ég geri mér vel grein fyrir því að það verður verra að taka þetta af en að setja þetta á," sagði Terry sem ætlar að taka tattúið af ef að Dallas tapar í úrslitaeinvíginu. „Ég er mjög hjátrúarfullur maður," svaraði Terry um ástæður þess að hann myndi taka tattúið af sér. Terry fékk sér þetta húðflúr 19. október síðastliðinn en það var liðsfélagi hans, DeShawn Stevenson, sem hefur fjölda húðflúra á sér, bauð honum þá þjónustu einka-húðflúrara síns. „Þetta táknaði bara það að við áttum raunhæfa möguleika á því að fara alla leið. Ef ég hefði ekki talið okkur eiga möguleika á titlinum í ár þá hefði ég aldrei samþykkt að fá mér svona tattú," sagði Terry sem er eini leikmaður Dallas ásamt Dirk Nowitzki sem var líka í liðinu þegar Dallas tapaði fyrir Miami í lokaúrslitum 2006. „Það eru allir að spá því að Miami vinni þetta einvígi og við vitum það. Það skiptir samt ekki máli fyrir okkur því við erum einbeittir. Við viðum hvert verkefnið er og við vitum hvernig við eigum að klára það," sagði Terry sem hefur skorað 17,3 stig að meðaltali í leik í úrslitakeppninni og er búinn að hitta úr 46 prósent þriggja stiga skota sinna.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira