Viðskipti innlent

Búið að afskrifa meira en 30 milljarða á tveimur vikum

Símon Birgisson skrifar
Síðustu tvær vikur hefur þurft að afskrifa meira en 30 milljarða króna úr gjaldþrota eignarhaldsfélögum, sem notuð voru til hlutabréfakaupa fyrir hrun og eru mörg hver til skoðunar vegna meintrar markaðsmisnotkunar í tengslum við Glitni og FL Group.

Eignarhaldsfélögin fjögur heita Hnokki, Hvannborg, Skarfhóll og Yfir heiðar ehf og voru til skoðunar hjá sérstökum saksóknara vegna gruns um markaðsmisnotkun með hlutabréf í Glitni og Fl Group. Glitnir hafði lánað Stím 19,5 milljarða til kaupa á hlutabréfum í Fl Group og Glitni, þar sem einu veðin voru hlutabréfin sjálf.

Eftir breytingar á eignarhaldi Stíms, þar sem eignarhluti útgerðarmannsins Jakobs Valgeirs Flosasonar, minnkaði voru eignarhlutafélögin fjögur stofnuð til að kaupa upp eignir Stíms.

Nú er skiptum á þrotabúum félaganna lokið. Hvert félag skuldar um 4,5 milljarða króna og ekki fæst króna upp í skuldirnar. Samtals um 18 milljarða króna enda einu eignirnar - bréfin í Glitni og Fl Group, orðin verðlaus eftir hrun.

En þetta eru ekki einu milljarðarnir sem Glitnir þarf að afskrifa í þessum mánuði.

Í síðustu viku lauk skiptum á búi eignarhaldsfélagsins Sólin skín ehf, sem var í eigu Baugs, Fons, Glitnis og Kevins Stanfords en tilgangur félagsins var að fjárfesta í bresku verslanakeðjunni Marks og Spencer. Samtals þarf að afskrifa fimmtán milljarða króna af skuldum félagsins en stærsti kröfuhafinn var skilanefnd Glitnis.

Sólin skín því ekki lengur á hin fjölmörgu eignarlausu eignarhaldsfélög hrunsins. Aðeins í þessum mánuði nema afskriftir þessara félaga um 35 milljörðum króna, eitt stykki tónlistarhús Harpa.


Tengdar fréttir

Sólin skín hjá sérstökum saksóknara

Skiptastjóri eignarhaldsfélagsins Sólin skín ehf., Páll Kristjánsson, hefur vakið athygli sérstaks saksóknara á starfsemi félagsins og sent gögn þar af lútandi til embættisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×