Golf

Axel Bóasson: Búinn að bíða lengi eftir að ná loksins stóra sigrinum

Sigurður Elvar Þórólfsson á Hólmsvelli í Leiru skrifar
Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili sýndi snilldartakta á lokaholunni á Íslandsmótinu í höggleik í golfi sem lauk í dag á Hólmsvelli í Leiru. Axel lék sér að því að slá með 8-járni af um 180 metra færi í öðru höggi inná flötina og setti hann púttið í fyrir erni og tryggði þar með sigurinn. Hann lék lokahringinn á 74 höggum og samtals var hann á 2 höggum undir pari.

Kristján Þór Einarsson úr Kili Mosfellsbæ varð annar þremur höggum á eftir Íslandsmeistaranum en Kristján lék best allra á lokahringnum eða 69 höggum. Þetta er annað árið í röð sem Kristján verður að sætta sig við annað sætið á Íslandsmótinu í höggleik.

Alfreð Brynjar Kristinsson úr GKG, bróðir Íslandsmeistarans í kvennaflokknum, tryggði sér þriðja sætið með því að fá fugl á 16. braut í bráðabana gegn þeim Ólafi Má Sigurðssyni úr GÓ og Heiðari Davíð Bragasyni úr GÓ en þeir voru allir á samtals +3 eftir 72 holur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×