Golf

Nökkvi: Ég kom sjálfum mér eiginlega á óvart

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nökkvi Gunnarsson hélt upp á 35 ára afmælið sitt með því að vinna Einvígið á Nesinu í dag. Hann tryggði sér sigurinn með því að vinna Inga Rúnar Gíslason í bráðabana.

„Þetta var rosalegt skemmtilegt og það er ekki verra að eiga afmæli á svona degi. Ég fékk smá afmælisgjöf í höggleiknum í morgun þegar bolti sem átti að fara út stoppaði inni. Þetta var rosalega gaman og ég kom sjálfum mér eiginlega á óvart," sagði Nökkvi Gunnarsson.

„Það voru vippin sem voru að skila þessu hjá mér því ég átti nokkur rosalega góð vipp inn að stöng. Höggið í síðasta bráðabananum er dæmi um það því það var mjög gott högg," sagði Nökkvi en hann þurfti að fara í gegnum bráðabana á síðustu tveimur holunum.

„Maður titrar allur og skelfur en reynir bara að anda djúpt og reyna að anda stressið frá sér. Það er galdurinn," sagði Nökkvi sem var ánægður með klúbbfélaga sína í Nesklúbbnum sem studdu vel við bakið á honum.

„Það var rosalega skemmtilegt að fá svona góðan stuðning og svo var bara sunginn afmælissöngurinn í lokin," sagði Nökkvi en það má sjá allt viðtalið með því smella hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×