Golf

Mikið undir á Sedgefield-vellinum - Ólafur Björn mætir stjörnunum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Davis Love verður á svæðinu líkt og fjölmargar aðrar golfstjörnur.
Davis Love verður á svæðinu líkt og fjölmargar aðrar golfstjörnur. Nordic Photos/AFP
Kylfingurinn Ólafur Björn Loftsson verður í góðum félagsskap þegar hann keppir á PGA-móti á Sedgefield-golfvellinum í Greensboro síðar í vikunni. Margir af bestu og frægustu golfurum heimsins hafa boðað komu sína á mótið.

PGA-mótið er það síðasta á mótaröðinni áður en kemur að FedEx-úrslitakeppninni sem hefst síðar í mánuðinum. Aðeins 125 stigahæstu kylfingarnir á PGA-mótaröðinni komast í úrslitakeppnina og því verður hart barist á Sedgefield-vellinum.

Englendingarnir Ian Poulter og Paul Casey, sem verma 16. og 17. sæti heimslistans, eru hæst skrifuðu golfararnir á mótinu. Báðir hafa unnið ellefu sigra á evrópsku mótaröðinni en ekkert risamót.

Bandaríkjamennirnir David Toms, Justin Leonard, Davis Love III, David Duval og Bill Haas verða allir mættir. Toms og Love eiga m.a. sigur á PGA-meistaramótinu að baki og Duval og Leonard sigur á Opna breska. Love vann sigur í FedEx-úrslitakeppninni í fyrra.

Haas, sem vermir 40. sæti heimslistans, verður því sem næst á heimavelli en hann er uppalinn í Charlotte í Norður-Karólínu þar sem Ólafur Björn hefur verið í háskólanámi.

Suður-Afríkumennirnir Retief Goosen og Ernie Els, sem eru í 24. sæti og 32. sæti heimslistans, verða meðal keppenda. Goosen, sem sótt hefur Ísland heim, hefur í tvígang haft sigur á Opna bandaríska meistaramótinu og sömu sögu má segja um Els. Els á einnig sigur á Opna breska á ferilskránni.

Þá verða Írinn og Íslandsvinurinn Padraig Harrington, Angel Cabrera frá Argentínu, Suður-Kóreumaðurinn Kim Kyung-Tae sem vermir 20. sæti heimslistans á meðal keppenda. EKki má gleyma Vijay Singh frá Fídjieyjum auk Jason Dufner sem glutraði niður forystu sinni á PGA-meistaramótinu í Atlanta í gær.

Keppni í mótinu hefst á fimmtudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×