Golf

Tvöfaldur sigur GR í Sveitakeppni GSÍ

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lið GR í karlaflokki
Lið GR í karlaflokki Mynd. / GSÍ
Golfklúbbur Reykjavíkur sigraði í 1. keild karla í Sveitakeppni GSÍ sem fram fór á Leirdalsvelli um helgina, en GR sigraði GKG í úrslitaleiknum.

Keppnin var æsispennandi en GR hafði betur 3-2, en það þurfti bráðabana í fjórmenningskeppninni til að útkljá um sigurvegara. Þar höfðu þeir Stefán Már Stefánsson og Arnór Ingvi Finnbjörnsson frá GR betur gegn Ottó Sigurðssyni og Kjartani Dór Kjartanssyni úr GKG.

GR sigraði einnig í 1. deild kvenna og einnig var mikil spenna á Hvaleyravellinum þar sem keppnin fór fram. Sveit GR bar sigur úr býtum gegn GK, 3-2, en einnig þurfti að grípa til bráðabana í fjórmenningskeppni kvenna. Þær Hildur K. Þorvarðardóttir og Íris Katla Guðmundóttir frá GR unnu fínan sigur gegn Þórdísi Geirsdóttur og Önnu Sólveigu Snorradóttur frá GK.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×