Ákvörðun Bernanke hækkar olíuverðið 10. ágúst 2011 08:47
Heimsmarkaðsverð á olíu fer nú aftur hækkandi í framhaldi af því að Ben Bernanke seðlabankastjóri Bandaríkjanna lýsti því yfir í gærkvöldi að stýrivöxtum landsins yrði haldið við núllið fram til ársins 2013. Hlutabréfamarkaðir hafa verið í töluverðri uppsveiflu síðan og það hefur smitast yfir í olíuverðið. Jafnframt spilar inn í dæmið að olíubirgðir Bandaríkjanna fara lækkandi. Verð á Brentolíunni hefur hækkað um 2,4% í morgun og er komið yfir 105 dollara á tunnuna. Verðið á bandarísku léttolíunni hefur hækkað um 3,1% og er komið yfir 82 dollara á tunnuna. Í frétt um málið á börsen er haft eftir Serene Lim hrávörusérfræðingi hjá Australia & New Zealand Banking Group að olíuverðið (léttolían) muni sennilega fara langleiðina í 100 dollara á tunnuna á þriðja ársfjórðungi ársins.
Mest lesið Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Viðskipti innlent Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Fleiri fréttir Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira