Golf

Montgomerie dreymir um sæti í Ryder-liði Evrópu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Montgomerie, sem er orðinn 48 ára, hefur lent í öðru sæti á þremur af fjórum stórmótunum í golfi.
Montgomerie, sem er orðinn 48 ára, hefur lent í öðru sæti á þremur af fjórum stórmótunum í golfi. Nordic Photos/AFP
Skoska kylfinginn Colin Montgomerie dreymir um að spila eitt skipti enn fyrir hönd Evrópu í Ryder-bikarnum. Sex ár eru síðan Montgomerie spilaði síðast fyrir Evrópu en hann á að baki átta keppnir fyrir hönd álfu sinnar. Þá var hann fyrirliði Ryder-liðsins í fyrra.

Evrópa sigraði Bandaríkin á Celtic Manor vellinum í Wales á síðasta ári. Sem fyrirliði hafði Montgomerie umsjón með valinu á liði Evrópu og röðun leikmanna í einvígin gegn Bandaríkjunum. Nú vill Montgomerie fá að spila á nýjan leik.

„Það væri frábært að fá að spila einu sinni í viðbót en ég verð að spila stórkostlega allt árið til þess að eiga möguleika," segir Montgomerie. Fyrirliði Evrópu er Spánverjinn Jose Maria Olazabal sem segir undir leikmönnum komið hvort þeir komist í liðið eða ekki.

„Þetta er rétt að byrja. Undankeppnin byrjar í þessari viku. Ég ræð þessu ekki, strákarnir ráða þessu sjálfir. Þeir verða að spila frábært golf. Það er erfitt að komast í liðið og til þess að geta það þurfa þeir að spila mjög, mjög vel," sagði Olazabal.

Johnnie Walker Championship-mótið fer fram á Gleneagles-vellinum í Skotlandi um helgina. Mótið er hluti af evrópsku mótaröðinni. Montgomerie er meðal þátttakenda.

Montgomerie er ekki lengur meðal efstu 50 kylfinga á heimslistanum en þeir fá sjálfkrafa þátttökurétt á stærstu mótum ársins.

„Ef þú ert ekki meðal 50 efstu ertu á hælunum og staðan er erfið. Þetta er svipað og fyrir félög í ensku úrvalsdeildinni með ekkert fjármagn. Næstum ómögulegt," sagði Montgomerie sem virðist fylgjast vel með gangi mála í enska boltanum.

„Þú þarft að vinna fjögur eða fimm mót til þess að sanna fyrir fyrirliðanum að þú sért að spila vel og vinna mót. Þá áttu möguleika á að verða valinn beint af fyrirliðanum," sagði Skotinn geðþekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×