Golf

Stefán og Sunna unnu lokastigamót Eimskipsmótaraðarinnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stefán Már Stefánsson, GR.
Stefán Már Stefánsson, GR. Mynd. / kylfingur.is
Lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni lauk í dag með tvöföldum sigri hjá GR, en þau Stefán Már Stefánsson og Sunna Víðisdóttir unnu bæði sannfærandi.

Mótið fór fram á Urriðavelli við Heiðmörk. Stefán vann mótið með miklu öryggi í karlaflokki, en hann lék lokahringinn á 71 höggi eða á pari vallarins, en samtals var Stefán á níu höggum undir pari.

Stefán varð sjö höggum á undan næsta manni en Haraldur Franklín Magnússon, GR, varð í öðru sæti.

Sunna Víðisdóttir, GR, vann í kvennaflokki en hún lék hringina þrjá á fjórum höggum yfir pari. Signý Arnórsdóttir, Keili, varð önnur en hún lék á 10 höggum yfir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×