Golf

16 ára kylfingur vann mót á LPGA-mótaröðinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lexi Thompson slær hér högg á mótinu um helgina.
Lexi Thompson slær hér högg á mótinu um helgina. Mynd. / AP
Kylfingurinn, Lexi Thompson, varð um helgina yngsti keppandinn til að sigra á móti í LPGA mótaröðinni í Bandaríkjunum, en hún er 16 ára.

LPGA mótaröðin er sterkasta kvenna mótaröðin í heiminum og því er þetta gríðarlegt afrek fyrir svona unga stelpu.

Þessi 16 ára kylfingur lék á tveimur höggum undir pari á lokadegi Navistar Classic mótinu og tryggði sér titilinn, en Tiffany Joh var önnur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×