Golf

Reykjavíkurúrvalið vann KPMG-bikarinn og setti met

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Liðstjórarnir með KPMG-bikarinn.
Liðstjórarnir með KPMG-bikarinn. Mynd/Golf.is
Reykjavíkurúrvalið vann öruggan sigur á Landsbyggðinni í KPMG bikarnum í golfi sem lauk í gær á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Lokatölur urðu 18 vinningar gegn 6 sem er stærsti sigurinn í keppninni til þessa en þetta er í fyrsta sinn sem Reykjavíkurúrvalið vinnur í þessari árlegu keppni.

„Við vildum ná þessu meti núna loksins þegar við sigruðum. Strákarnir léku vel og sigurinn var aldrei í hættu,“ sagði Sigurður Pétursson, liðsstjóri Reykjavíkurúvalsins, í samtali við golf.is.

Reykjavíkurúrvalið fékk 8,5 stig (gegn 3,5) út úr þriðju umferð sem var tvímenningur en Reykjavíkurúrvalið hafði fengið 4,5 stig (gegn 1,5) út úr fjórmenningnum og 5 stig (gegn 1) í fjórleiknum.

Lið höfuðborgarinnar vann líka í keppni eldri kylfinga í KPMG-Bikarnum en Reykjavíkurúrvalið vann þar öruggan 16-7 sigur gegn landsbyggðinni.

KPMG-bikarmeistarar Reykjavíkurúrvalsins 2011:

Andri Þór Björnsson GR - 3 stig í KPMG-bikarnum  

Arnar Snær Hákonarson GR - 1,5 stig  

Alfreð Brynjar Kristinsson GKG - 2 stig  

Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR - 1,5 stig  

Guðjón Henning Hilmarsson GKG - 1 stig  

Haraldur Franklín Magnús GR - 2 stig  

Nökkvi Gunnarsson NK - 3 stig  

Rafn Stefán Rafnsson GO - 3 stig  

Sigurjón Arnarsson GR - 2 stig  

Stefán Már Stefánsson GR - 3 stig  

Íris Katla Guðmundsdóttir GR - 1,5 stig  

Sunna Víðisdóttir GR - 2 stig

 

Liðstjóri: Sigurður Pétursson GR

Aðst. Liðstjóri Úlfar Jónsson GKG   






Fleiri fréttir

Sjá meira


×