Golf

Birgir Leifur á einu yfir pari eftir tíu holur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd / Daníel
Birgir Leifur Hafþórsson hefur lokið tíu holum á lokahringnum á opna austurríska mótinu í golfi. Hann er á einu höggi yfir pari og á einu höggi undir pari samanlagt.

Birgir Leifur spilaði frábært golf í gær þegar hann lék hringinn á fjórum höggum undir pari. Hann var í 23. sæti að lokum þriðja dags en er nú í 41. sæti.

Birgir Leifur hefur parað níu holur og fengið einn skolla.

Hægt er að fylgjast með gangi mála hjá Birgi Leifi á heimasíðu mótsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×