Golf

Greg Norman: Tiger mun ekki vinna fleiri risamót

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Norman með Tiger.
Norman með Tiger.
Ástralinn Greg Norman hefur enga trú á því að Tiger Woods muni vinna annað risamót á ferlinum. Norman segir að það sé einfaldlega of margt að trufla Tiger.

Tiger vann 14 risamót á 11 árum en eftir að einkalíf hans hrundi hefur hann ekki verið líkur sjálfum sér á golfvellinum.

"Þegar Tiger var bestur snérist allt um golfið. Það er ekki þannig lengur. Það er svo margt að trufla hans líf sem kemur í veg fyrir að hann geti einbeitt sér að golfinu," sagði Norman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×